08. des 2008
Vinnumálastofnun áætlar að nú starfi 11 til 12 þúsund útlendingar hér á landi og að þeir verði ekki nema um 10 þúsund um áramótin.
Talið er að um mitt sumar hafi starfað hér 18 til 19 þúsund útlendingar.
Störfin sem útlendingarnir hafa farið úr eru fyrst og fremst störf sem eru að leggjast af, að því er Karl Sigurðsson, forstöðumaður vinnumálasviðs Vinnumálastofnunar, telur.
„Þeir hafa flestir farið úr störfum í byggingargeiranum þar sem er algjört frost og iðnaði tengdum honum. Útlendingarnir eru einnig að fara úr verslun sem er að dragast saman,“ segir Karl.
Hann kveðst hafa heyrt að í einstaka tilfellum sé útlendingum sagt upp fyrr en Íslendingum þegar verið er að draga saman. „Fulltrúar stéttarfélaga segja að ef svo er sé það í undantekningartilfellum.“
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/12/08/utlendingum_faekkar/)