Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Útlendingar með kvef fara á slysadeild

05. jan 2008

Landspítalinn í Fossvogi.Komum Austur-Evrópubúa á slysadeild Landspítalans hefur fjölgað gríðarlega á undanförnum tveimur árum. Árið 2005 komu 4 til 8 austur-evrópskir karlmenn í hverjum mánuði á slysadeildina.

Undanfarna tvo til þrjá mánuði hefur fjöldi þeirra austur-evrópsku karlmanna, einkum frá Póllandi og Eystrasaltslöndunum, sem komið hefur á slysadeildina verið 120 til 140 í hverjum mánuði vegna ýmiss konar slysa en einnig vegna kvefs og annarra kvilla sem ættu heima á heilsugæslunni, að því er Ófeigur Þorgeirsson yfirlæknir greinir frá.

Hann getur þess jafnframt að fjölskyldur austur-evrópsku karlanna, jafnvel foreldrar þeirra sem starfa hér, séu einnig farnar að leita til slysadeildarinnar vegna ýmissa sjúkdóma.

„Það er skortur á framboði á læknisþjónustu utan spítalans. Fólk kemur á staðinn þar sem þjónustan er hvað dýrust miðað við þjónustu heilsugæslustöðvanna. Séu sjúklingar sjúkratryggðir er kostnaður þeirra sambærilegur við það sem greitt er á einkareknum stofum. Séu þeir ekki sjúkratryggðir er lágmarkskostnaðurinn vegna komu á slysadeildina 20 þúsund krónur. Auðvitað kemur fyrir að fólk getur ekki borgað," segir Ófeigur.

Þann 17. desember síðastliðinn námu skuldir ósjúkratryggðra útlendinga við Landspítalann samtals 110,3 milljónum króna.

 



Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/01/05/utlendingar_med_kvef_fara_a_slysadeild/)