Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Blóđug slagsmál skóladrengja

02. mars 2009

 

Fanney Halldórsdóttir skólastjóri Grunnskóla Sandgerđis segir of mikiđ gert úr slagsmálum fjórtán ára drengja í grunnskólanum ţar sem einn slasađist illa, tennur losnuđu og hann missti tímabundiđ heyrn. Ekki sé vitađ nákvćmlega um áverka drengsins eđa tildrög slagsmálanna.

 

Drengjunum hefur veriđ vísađ úr skóla međan máliđ er til međferđar en ţađ er á borđi skólayfirvalda og barnaverndarnefndar.

 

Strákurinn sem slasađist er pólskur en skólastjórinn segir ađ ekki sé grunur um ţađ ađ drengurinn verđi fyrir einelti vegna ţjóđernis eđa annars.

 

Svanborg Júlíusdóttir 15 ára nemandi segist hafa veriđ inni í nemendaráđsherberginu ţegar hún heyrđi öskur og kallađ á hjálp. Hún hafi séđ einn nemanda halda ţeim sem slasađist föstum međan annar hafi bariđ hann. Ţó nokkur hópur nemenda hafi horft á án ţess ađ ađhafast. Strákunum lenti saman eftir ađ sá sem fyrir árásinni varđ var kallađur polli en hann er af pólsku bergi brotinn.

 

Annar drengjanna sem höfđu sig mest í frammi er íţróttamađur Sandgerđisbćjar en hann ćfir ólympíska hnefaleika hjá hnefaleikafélagi Reykjaness og hefur unniđ til verđlauna fyrir góđa frammistöđu. Sjá MBL sjónvarp.

 

 



Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/03/02/blodug_slagsmal_skoladrengja/?ref=fphelst)