Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Mansalsmál rannsakað

14. sept 2008

Talið er hugsanlegt að upp hafi komist um mansalsmál hér á landi í aðgerð lögreglu í Reykjanesbæ á fimmtudag. Fram kom í fréttum Útvarpsins í dag að málið tengist kínverskri konu sem þar hefur dvalist og kínverskum karlmanni sem hafi verið stöðvaður á Keflavíkurflugvelli með vegabréf sem talið sé að hafi verið ætlað konunni.

Samkvæmt því sem fram kom í fréttum Útvarpsins telur lögregla að til hafi staðið að konan greiddi glæpaklíku hluta af launum sínum, hefði hún fengið hæli hér á landi.

Málið er í rannsókn og fást ekki frekari upplýsingar um það sem stendur.

Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/09/14/mansalsmal_rannsakad/)

Hælisleitandanum ekið heim

14. sept 2008

Farzad Rahmanian utan við lögreglustöðina í Reykjanesbæ.Hælisleitandinn Farzad Rahmanian, frá Íran, sem sat fyrir utan lögreglustöðina í Reykjanesbæ í mótmælaskyni í rúman sólarhring í gær er hættur sinni mótmælasetu.

Lögreglan ók honum heim í gærkvöldi.  „Hann kom og vildi fá far, það var náttúrulega ekki gott veður hérna, ausandi vatnsveður annað slagið," sagði varðstjóri lögreglunnar í samtali við mbl.is.

(http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/09/14/haelisleitandanum_ekid_heim/)

Útlendingum fjölgar í fangageymslum

14. sept 2008

mynd

Stöðugt fleiri útlendingar gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Erlendir ríkisborgarar voru innan við einn af hverjum tíu sem komu við í fangageymslum í ársbyrjun 2007 en í júlí í sumar var einn af hverjum fjórum af þeim sem voru vistaðir í fangageymslum með erlent ríkisfang.

Þegar tölur yfir þá sem eru handteknir og látnir gista í fangageymslum eru skoðaðar kemur í ljós að útlendingum hefur fjölgað verulega sem hlutfall af heildarfjölda þeirra sem gista fangageymslur. Í ársbyrjun í fyrra var hlutfallið lítið, eða aðeins 6,2 prósent, en fór alveg upp í tæp 20 prósent í fyrrahaust.
Á þessu ári hefur hlutfallið verið lægst rúm 13 prósent og farið nokkrum sinnum vel yfir 20 prósent. Í sumar náði það hæstu hæðum, eða 25 prósentum, og í ágúst var það 23 prósent.

Árni Þór Sigmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segist ekki vita hvers vegna útlendingum hefur fjölgað hlutfallslega í fangageymslum lögreglunnar. Hann kann litlar skýringar á því hverjir gisti fangageymslur. Útlendingum hafi fjölgað í landinu síðustu ár og sú þróun geti endurspeglast í fangaklefum. Ekki megi gleyma því að sami maður geti komið oft við sögu og það geti skekkt samanburðinn. Þá hafi útlendingum fjölgað á Íslandi og þá liggi í hlutarins eðli að þeir verði hærra hlutfall af þeim sem gista í fangaklefum.

Rannveig Þórisdóttir, félagsfræðingur hjá lögreglunni, segir að ofurölvun sé oft ástæða fyrir veru fólks í fangageymslu. Ef viðkomandi sé áfengisdauður eða geti af öðrum ástæðum ekki tjáð sig og hafi ekki skilríki þá verði hann að gista fangageymslu frekar en að vera sendur heim. Rannveig segir að þjófnuðum hafi fjölgað í sumar og þjófnaðarmál hafi verið ein helsta ástæðan fyrir veru útlendinga í fangaklefa það sem af er þessu ári. Útlendingar séu líka í fangaklefum vegna ölvunar við akstur og ölvunar á almannafæri í þessari röð en Íslendingar séu í fangaklefum vegna ölvunar við akstur, á almannafæri og þjófnaðar. Íslendingar óski líka miklu frekar eftir því að fá að gista í fangaklefa en útlendingar.

„Maður verður alltaf að passa sig á því með erlendu ríkisborgarana að þetta eru lágar tölur. Það þarf ekki nema einn hóp til að skekkja myndina," segir hún. -ghs@frettabladid.is


Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080914/FRETTIR01/542470622&SearchID=7333007379509)

„Ég skal drepa konuna þína!“

13. sept 2008

„Eftir að ráðist var á mig hugsaði ég oft um að ég hefði viljað hafa rafbyssu og vera í skot- og hnífheldu vesti. En mér finnst sorglegt að hugsa um það. Að sjá fram á að samfélagið verði þannig.“

 

Þetta segir lögreglumaður sem varð fyrir fólskulegri árás ölvaðs manns í starfi. Hann og félagar hans segja ofbeldi gegn lögreglunni daglegt brauð. Það kemst sjaldnast í fréttir, flokkast undir smápústra og afleiðingarnar undir minni háttar meiðsli. Þeir fá pústra, eru klóraðir, það er sparkað í þá og margoft kemur fyrir að hrækt sé á þá.

 

Hótanirnar, sem dynja á lögreglumönnum, reyna á þolrifin. „Ég skal drepa konuna þína og krakkana, helvítið þitt.“ „Ég fer heim til þín og nauðga konunni þinni.“

 

Kannski er einhverjum alvara

 

Einn lögreglumaður sagðist hafa kylfuna og piparúðann við rúmstokkinn á nóttunni. „Ég hef svo oft heyrt viðbjóðslegar hótanir í minn garð og ekki síður konunnar minnar. Kannski er einhverjum þeirra alvara?“

 

Lögreglumenn kunna ekki lausn á vandanum. Þeir segja virðingarleysið mikið, bæði hjá fullorðnum og þeim sem yngri eru. „Við lendum margoft í því að unglingar stofni til einhverra vandræða og þegar við stillum til friðar erum við umkringdir krökkum, sem allir eru með gemsana á lofti. Þeir gera sitt besta til að stofna til vandræða og taka svo myndir og vídeó af öllum viðbrögðum okkar.“
 
 

 

 

Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/09/13/eg_skal_drepa_konuna_thina/)

Til Taílands á sjúkrahús

13. sept 2008

Eitt hundrað og sex íslenskir sjúklingar fengu í fyrra meðferð á tveimur sjúkrahúsum í Taílandi. Ef þeim er eins farið og öðrum Norðurlandabúum hafa um 60% þeirra verið ferðamenn, sem lentu í óhöppum, en 40%, eða alls 43 einstaklingar, farið gagngert til Taílands að leita sér lækninga.

 

Taílendingar leggja mikla áherslu á að byggja upp svokallaða lækningaferðamennsku. Þar í landi eru 333 einkareknir spítalar, sem sækjast eftir sjúklingum frá fjarlægum löndum. Styrkur þeirra er að bjóða upp á aðgerðir á hátæknisjúkrahúsum fyrir hluta þess kostnaðar sem slíkar aðgerðir kosta á Vesturlöndum. 
 

 


Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/09/13/til_tailands_a_sjukrahus/)

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 >>