Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

SUF ályktar um Ramses

09. 00 2008

mynd

Samband ungra framsóknarmann sendi frá sér ályktun í dag þar sem það er harmað að mál Paul Ramses hafi ekki verið tekið til efnislegrar meðferðar hjá Útlendingastofnun.

"Þrátt fyrir að heimilt sé að senda Paul til Ítalíu þar sem Ítalía ber ábyrgð á málsmeðferð hans samkvæmt Dublin-reglugerðinni þá hefði verið hægt í hans tilfelli að nýta grein í reglugerðinni er heimilar Íslendingum að taka málið í sínar hendur.

Paul Ramses var hér á landi sem skiptinemi auk þess sem hann hefur starfað fyrir íslenskar hjálparstofnanir. Hann hefur því mikil tengsl við land og þjóð og hefði verið eðlilegt að málsmeðferð í hælisumsókn hans væri hér á landi.

SUF telur að málið sýni að stjórnvöld þurfi að setja meiri kraft og fjármuni í málaflokk hælisleitenda. Hælisleitendur eru í mikilli óvissu á meðan hælisumsókn þeirra er í vinnslu og er það bæði þeim sem og íslenskum stjórnvöldum til góðs að hægt sé að leysa úr málum þeirra á stuttum tíma án þess að málshraðinn hafi áhrif á rannsókn mála.

Starfsmenn Útlendingastofnununar vinna erfitt starf og hefur hælisleitendum sem og erlendum ríkisborgurum hér á landi fjölgað gífurlega síðustu ár. Álag á stofnunina hefur aukist í samræmi við það. Því er brýnt að Útlendingastofnun sé veittur nauðsynlegur stuðningur og starfsumhverfi sem gerir henni kleyft að sinna lögbundnu starfi sínu á sem bestan hátt.

Ljóst er að skoða þarf ferli hælisumsókna, allt frá því að umsókn er lögð fram þar til máli líkur. Geðþóttaákvarðanir eiga ekki að eiga sér stað innan stjórnkerfisins heldur verður að rannsaka öll mál af kostgæfni. Þannig eiga sambærileg tilvik að vera afgreidd á sambærilegan hátt," segir í ályktun SUF



Heimildir: visir.is (http://www.visir.is/article/20080709/FRETTIR01/918519412)

Facebook-hópur stofnaður til stuðnings Paul Ramses

04. 00 2008

mynd

Stofnaður hefur verið hópur til stuðnings Keníumanninum Paul Ramses á vinatengslavefnum vinsæla Facebook. Alls höfðu 132 notendur síðunnar skráð sig í hópinn í morgun. Kallast hópurinn Útlendingastofnun: Sækið Paul Ramses og virðið mannréttindi fólks!

Á vefsíðunni er meðal annars hægt að tjá skoðanir sínar á málinu og vekja athygli á atburðum og fréttum í kringum það. Til dæmis er vakin athygli á mótmælunum sem eru nú í dag kl. 12 fyrir framan Dóms-og kirkjumálaráðuneytið.

Á Facebook er hægt að stofna hópa um hin ýmsu málefni.Margir hópar eru til á síðunni sem hafa þann tilgang að mótmæla mál sem talin eru brot á mannréttindum.



Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080704/FRETTIR01/286350023)

Erlendar glæpaklíkur setjast að hér á landi

04. 00 2008

mynd

„Rauði þráðurinn í skipulagðri glæpastarfsemi á Norðurlöndum, þar með talið hér á landi, er fíkniefnabrot og austur-evrópskar glæpaklíkur," segir Gylfi Gylfason, lögreglufulltrúi hjá embætti ríkislögreglustjóra. Hann segir austur-evrópsku glæpaklíkurnar farnar að hreiðra um sig hér á landi. Þá sé vitað að íslenskir glæpahópar séu mjög virkir á sviði fíkniefna­inn­flutnings.

Gylfi sat fund sem haldinn var nýverið á vegum ríkislögreglustjóra og tollstjórans í Reykjavík um skipulagða glæpastarfsemi á Norðurlöndunum. Fundurinn var liður í norrænu samstarfi greiningardeilda tollgæslu og lögreglu á Norðurlöndum sem hefur staðið frá árinu 2007. Í þessu samstarfi eru haldnir tveir fundir á ári þar sem skipulögð glæpastarfsemi er til umfjöllunar. Fundinn sátu fulltrúar frá tollgæslu og lögreglu í Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Íslandi. Fulltrúar á fundinum fóru yfir stöðu mála í hverju landi fyrir sig og fjölluðu um glæpahópa og aðferðir sem hóparnir beita. Á fundinum var unnið að sameiginlegri skýrslu um skipulagða glæpastarfsemi á Norðurlöndunum sem verður kynnt á norrænum fundi yfirmanna miðlægra embætta tollgæslu og lögreglu.

„Ástandið hjá okkur, hvað varðar skipulagða glæpastarfsemi, er líkast því sem er í Noregi," útskýrir Gylfi. „Glæpaklíkur frá Austur-Evrópu eru í auknum mæli að „markaðssetja" sig á Norðurlöndunum, þar með talið hér. Umsvif þeirra fara vaxandi. Norðmenn hafa eytt miklum tíma og orku í að greina þessa austur-evrópsku glæpahópa hjá sér. Hóparnir eru vel skipulagðir í Noregi og stunda bæði skipulagða innbrotsþjófnaði og standa að fíkniefnasmygli, auk annarra brota. Þessum umsvifum fylgir harðnandi ofbeldi."

Gylfi segir tollgæslu og lögreglu hér á landi vinna náið saman, sem sé mjög mikilvægt. „Þá leggur embætti ríkislögreglustjóra mikla áherslu á þetta alþjóðlega samstarf til þess að menn séu betur í stakk búnir til að mæta þessari skipulögðu glæpastarfsemi," útskýrir Gylfi. „Þetta eru glæpir án landamæra og Ísland ekki eins einangrað og það var. Því er svo mikilvægt að virkt upplýsingastreymi sé milli landa og samvinna tollgæslu og lögreglu öflug."jss@frettabladid.is


Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20081004/FRETTIR01/766089632/-1)

Hyggjast mótmæla við dómsmálaráðuneytið

04. 00 2008

mynd

Efnt verður til mótmæla í hádeginu í dag fyrir utan dómsmálaráðuneytið í Skuggasundi.

Hópur fólks ætlar að koma þar saman til að mótmæla brottvísun Keníamannsins Paul Ramses úr landi og jafnframt gera kröfu um að hann fái að snúa heim til konu sinnar og barns á Íslandi. Í tilkynningu um mótmælin segir meðal annars að krafist er þess að Ramses fái pólitískt hæli hérlendis og að vinnubrögð eins og viðhöfð voru í máli hans muni ekki endurtaka sig.


Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080704/FRETTIR01/564525151)

mbl - Erlendir ríkisborgarar 6,8% landsmanna

21. des 2007

Erlendir ríkisborgarar 6,8% landsmanna

Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað mikið hér á landi undanfarin ár og er hlutfall þeirra af íbúum í heild nú 6,8% samanborið við 6% fyrir ári. Langflestir erlendir ríkisborgarar sem búsettir eru á Íslandi eru með pólskt ríkisfang eða 8350, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni.

Litháar hér á landi voru 1316 þann 1. desember, Þjóðverjar voru 980, Danir 903, Portúgalar 886 og einstaklingar með ríkisfang á Filippseyjum 771.

Hagstofan segir, að fjöldi einstaklinga með ríkisfang á Norðurlöndum hafi lítið breyst undanfarna áratugi en flestum öðrum þjóðernum hafi fjölgað til muna.

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 >>