Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Maður handtekinn vegna rasistasíðu

03. jan 2008

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók nú í desember mann vegna gruns um aðild að síðunni skapari.com. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni leikur grunur á hverjir standa á bakvið hana og er rannsókn langt komin. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er málið þrátt fyrir það erfitt meðferðar þar sem síðan er vistuð erlendis. Ekki er vitað hvenær vænta má þess að rannsókn ljúki.

Í yfirlýsingu sem forsvarsmenn síðunnar sendu frá sér í dag, kemur fram að unnið sé að endurbótum hennar, en hún liggur tímabundið niðri. Hún verði ekki tekin niður, heldur muni fleiri slíkar spretta upp með tímanum. „Þetta eru einfaldlega lögin um „action re-action“. Rasismi er „re-action“ við flutningi skítasinna til hvítra landa. Merkilegt og fyndið er að þegar einhver tjáir sig um ást og aðdáun á sínum kynþætti þá er sá hinn sami kallaður kynþáttahatari. En það á sér allt mjög eðlilegar útskýringar þegar maður áttar sig á dagskrá þeirra sem ráða,“ segir í yfirlýsingunni.

Dane Magnússon, formaður Félags anti-rasista, segir fjölda fólks hafa sett sig í samband við félagið vegna síðunnar þar sem velt er fyrir sér aðgerðum lögreglunnar. Hann segir að miðað við samtal hans við lögregluna hafi ýmislegt benti til að aðstandandi síðunnar sé búsettur erlendis. „Ef það fólk sem heldur síðunni úti er  svona stolt sem það segist vera, af hverju eru ekki nöfn þess nefnd eða  myndir af því birtar? Þessir einstaklingar hljóta að hafa eitthvað á samviskunni eða vita einfaldlega að þeir eru að brjóta lögin,“ segir Dane.

Myndband: Ísland er mitt himnaríki

16. 00 2008

mynd

Tæplega þrítugur karlmaður, Mamadou Daillo, vann í vikunni mál sem hann höfðaði gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu. Maðurinn er frá Máritaníu og kom hingað til lands frá Amsterdam árið 2004.

Hann óskaði þá eftir hæli á Íslandi sem Útlendingastofnun synjaði árið 2006. Dóms og kirkjumálaráðuneyti staðfesti svo ákvörðunina.

Daillo krafðist þess að héraðsdómur ógilti þessa ákvörðun á þeim forsendum að Útlendingastofnun hafi látið hjá líða að kanna þær aðstæður sem Daillo hafi borið fyrir sig við hælisumsóknina.

Útlendingastofunun sendi fyrirspurn um ástand mála í Máritaníu til Sameinuðu þjóðanna þegar verið var að meta umsókn Daillo en tók ákvörðun um að synja honum um hæli áður en svar fékkst við fyrirspurninni.

Héraðsdómur komst því að þeirri niðurstöðu að ákvörðun Útlendingastofnunnar um að synja Daillo um hæli hefði ekki verið byggð á fullnægjandi upplýs¬ingum um aðstæður hans í heimalandi sínu. Þannig hafi ekki verið unnt að meta hvort Daillo hefði lögmæta ástæðu til að óttast að vera áfram í Máritaníu eða ekki.

Því var ákvörðun Útlendingastofnunnar og íslenska ríkisins felld úr gildi. Málið er komið aftur á byrjunarreit. Daillo mun að öllum líkindum sækja aftur um pólitískt hæli og Útlendingastofnun verður að fjalla um umsókn hans upp á nýtt og taka ákvörðun í kjölfarið.

Í kjölfar dómsins fór Vísir suður til Njaðrvíkur og ræddi við Daillo um málið. Hann lýsti aðstæðum sínum í fangeslinu í Máritaníu og þakklætinu sem hann ber til Íslendinga sem hann segir hafa tekið sér opnum örmum.

Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080416/FRETTIR01/514317089)

Yfir 50 danskir nasistar hafa skráð sig í herinn og heimavarnarliðið

16. 00 2008

mynd

Danski nasistaflokkurinn hefur sent að minnsta kosti 50 af meðlimum sínum inn í danska herinn og heimavarnarliðið. Þar eiga þeir að læra að drepa útlendinga.

Þetta kemur fram í viðtali við Jonni Hansen leiðtoga danska nasistaflokksins sem birt er í Ekstra Bladet í dag. Hann segir að hann hvetji meðlimi flokksins til að skrá sig í herinn því þar geti þeir lært að meðhöndla og nota vopn á alveg löglegan hátt. Og það sé einkum ástæðan fyrir þessu.

Sjálfur hefur Jonni Hansen verið meðlimur heimavarnarliðsins eða hjemmeværnet eins og það kallast. Ferill hans var þó ekki langur áður en hann var rekinn þaðan með skömm.

Þeir nasistar sem skráðir eru nú láta hinsvegar lítið á sér bera í hernum og heimavarnarliðinu en Hansen segir að hann ætli að nota sér þjónustu þeirra í komandi borgarastríði gegn útlendingum.

Hansen er ekkert að skafa af hlutunum og segir að þegar borgarastríðið skelli á séu þeir tilbúnir til að skjóta alla útlendinga af öðrum kynþáttum en hvítum.

Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080416/FRETTIR02/548574364)

SUF ályktar um Ramses

09. 00 2008

mynd

Samband ungra framsóknarmann sendi frá sér ályktun í dag þar sem það er harmað að mál Paul Ramses hafi ekki verið tekið til efnislegrar meðferðar hjá Útlendingastofnun.

"Þrátt fyrir að heimilt sé að senda Paul til Ítalíu þar sem Ítalía ber ábyrgð á málsmeðferð hans samkvæmt Dublin-reglugerðinni þá hefði verið hægt í hans tilfelli að nýta grein í reglugerðinni er heimilar Íslendingum að taka málið í sínar hendur.

Paul Ramses var hér á landi sem skiptinemi auk þess sem hann hefur starfað fyrir íslenskar hjálparstofnanir. Hann hefur því mikil tengsl við land og þjóð og hefði verið eðlilegt að málsmeðferð í hælisumsókn hans væri hér á landi.

SUF telur að málið sýni að stjórnvöld þurfi að setja meiri kraft og fjármuni í málaflokk hælisleitenda. Hælisleitendur eru í mikilli óvissu á meðan hælisumsókn þeirra er í vinnslu og er það bæði þeim sem og íslenskum stjórnvöldum til góðs að hægt sé að leysa úr málum þeirra á stuttum tíma án þess að málshraðinn hafi áhrif á rannsókn mála.

Starfsmenn Útlendingastofnununar vinna erfitt starf og hefur hælisleitendum sem og erlendum ríkisborgurum hér á landi fjölgað gífurlega síðustu ár. Álag á stofnunina hefur aukist í samræmi við það. Því er brýnt að Útlendingastofnun sé veittur nauðsynlegur stuðningur og starfsumhverfi sem gerir henni kleyft að sinna lögbundnu starfi sínu á sem bestan hátt.

Ljóst er að skoða þarf ferli hælisumsókna, allt frá því að umsókn er lögð fram þar til máli líkur. Geðþóttaákvarðanir eiga ekki að eiga sér stað innan stjórnkerfisins heldur verður að rannsaka öll mál af kostgæfni. Þannig eiga sambærileg tilvik að vera afgreidd á sambærilegan hátt," segir í ályktun SUF

Heimildir: visir.is (http://www.visir.is/article/20080709/FRETTIR01/918519412)

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 >>