Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Kallaður negri og api

07. jan 2008

David Cross: Fórnarlamb rasisma

David Cross segist hafa upplifað stöðugt einelti og rasisma af hálfu samstarfsmanna sinn hjá KB-Raflögnum. Ástandið batnaði ekki þegar hann leitaði hjálpar framkvæmdastjórans og hann var að lokum rekinn.
David segir að hann hafi þurft að líða stöðuga niðrandi kynþáttafordóma og þurft að þola setningar á borð við „Af hverju ferðu ekki aftur til frumskógarins, apinn þinn?“

Viðtal við David Cross og framkvæmdastjóra KB-Raflagna er að finna í DV í dag.

Útlendingar með kvef fara á slysadeild

05. jan 2008

Landspítalinn í Fossvogi.

Landspítalinn í Fossvogi.

 



Komum Austur-Evrópubúa á slysadeild Landspítalans hefur fjölgað gríðarlega á undanförnum tveimur árum. Árið 2005 komu 4 til 8 austur-evrópskir karlmenn í hverjum mánuði á slysadeildina.

Undanfarna tvo til þrjá mánuði hefur fjöldi þeirra austur-evrópsku karlmanna, einkum frá Póllandi og Eystrasaltslöndunum, sem komið hefur á slysadeildina verið 120 til 140 í hverjum mánuði vegna ýmiss konar slysa en einnig vegna kvefs og annarra kvilla sem ættu heima á heilsugæslunni, að því er Ófeigur Þorgeirsson yfirlæknir greinir frá.

Hann getur þess jafnframt að fjölskyldur austur-evrópsku karlanna, jafnvel foreldrar þeirra sem starfa hér, séu einnig farnar að leita til slysadeildarinnar vegna ýmissa sjúkdóma.

„Það er skortur á framboði á læknisþjónustu utan spítalans. Fólk kemur á staðinn þar sem þjónustan er hvað dýrust miðað við þjónustu heilsugæslustöðvanna. Séu sjúklingar sjúkratryggðir er kostnaður þeirra sambærilegur við það sem greitt er á einkareknum stofum. Séu þeir ekki sjúkratryggðir er lágmarkskostnaðurinn vegna komu á slysadeildina 20 þúsund krónur. Auðvitað kemur fyrir að fólk getur ekki borgað," segir Ófeigur.

Þann 17. desember síðastliðinn námu skuldir ósjúkratryggðra útlendinga við Landspítalann samtals 110,3 milljónum króna.

Útlendingar með kvef fara á slysadeild

05. jan 2008

Landspítalinn í Fossvogi.Komum Austur-Evrópubúa á slysadeild Landspítalans hefur fjölgað gríðarlega á undanförnum tveimur árum. Árið 2005 komu 4 til 8 austur-evrópskir karlmenn í hverjum mánuði á slysadeildina.

Undanfarna tvo til þrjá mánuði hefur fjöldi þeirra austur-evrópsku karlmanna, einkum frá Póllandi og Eystrasaltslöndunum, sem komið hefur á slysadeildina verið 120 til 140 í hverjum mánuði vegna ýmiss konar slysa en einnig vegna kvefs og annarra kvilla sem ættu heima á heilsugæslunni, að því er Ófeigur Þorgeirsson yfirlæknir greinir frá.

Hann getur þess jafnframt að fjölskyldur austur-evrópsku karlanna, jafnvel foreldrar þeirra sem starfa hér, séu einnig farnar að leita til slysadeildarinnar vegna ýmissa sjúkdóma.

„Það er skortur á framboði á læknisþjónustu utan spítalans. Fólk kemur á staðinn þar sem þjónustan er hvað dýrust miðað við þjónustu heilsugæslustöðvanna. Séu sjúklingar sjúkratryggðir er kostnaður þeirra sambærilegur við það sem greitt er á einkareknum stofum. Séu þeir ekki sjúkratryggðir er lágmarkskostnaðurinn vegna komu á slysadeildina 20 þúsund krónur. Auðvitað kemur fyrir að fólk getur ekki borgað," segir Ófeigur.

Þann 17. desember síðastliðinn námu skuldir ósjúkratryggðra útlendinga við Landspítalann samtals 110,3 milljónum króna.

 



Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/01/05/utlendingar_med_kvef_fara_a_slysadeild/)

Pólverjar löghlýðnustu menn á Íslandi

05. jan 2008

Alþjóðahúsið við Hverfisgötu

Alþjóðahúsið við Hverfisgötu mbl.is/Sverrir

Innlent | 24 stundir | 5.1.2008 | 07:45

Hlutfallslega fleiri Íslendingar voru ákærðir fyrir glæpi árið 2006 en Pólverjar sem búsettir eru hér á landi. Ef í fjölda ákærðra er deilt með fjölda þeirra sem skráðir eru búsettir hér árið 2006 samkvæmt tölum Hagstofu Íslands, er hlutfall ákærðra lægst hjá Pólverjum.

Erlendir ríkisborrgarar sem ákærðir eru fyrir glæpi eru sumir ferðamenn og því má ætla að hlutfall ákræðra með erlendan ríkisborgararétt sem búsettir eru hérlendis sé enn lægra.

Formaður samtaka Pólverja á Íslandi Witek Bogdanski telur hægt að rekja fordóma til fjölmiðla. Formaður blaðamannafélagsins er ósammála því. Einar Skúlason í Alþjóðahúsi segir alltaf mesta fordóma gagnvart þeim hópi innflytjenda sem mest er áberandi hverju sinni. Amal Tamimi telur stéttaskiptingu í viðhorfum til útlendinga eftir því hvort föðurlönd þeirra eru rík eða fátæk.

Fimm í gæsluvarðhald vegna árásar á lögreglumenn

04. jan 2008

 

MYND/Hari

Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á gæsluvarðhaldsúrskurð yfir fimm mönnum sem grunaðir eru um fólskulega árás á lögreglumenn í miðborginni í nótt. Verða þeir í gæsluvarðhaldi fram á þriðjudag.

Fjórir óeinkennisklæddir lögreglumennirnir voru við fíkniefnaeftirlit þegar fimm menn réðust á þá og létu höggin og spörkin dynja á þeim þannig að flytja þurfti tvo lögreglumannanna á slysadeild með sjúkrabílum. Hinir tveir þurftu einnig að leita lækninga. Einn lögreglumannanna fékk þungt höfuðhögg en að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur hann verið útskrifaður nú. Hann verður þó frá vinnu í einhvern tíma.

Þrír árásarmannanna voru handteknir í nótt ásamt stúlku en stúlkunni var síðar sleppt. Leitað var að hinum mönnunum tveimur og fundust þeir nú í eftirmiðdaginn að sögn Friðriks. Allir eru mennirnir af erlendu bergi brotnir. Sem fyrr segir hafa tveir þeirra þegar verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald og unnið er í máli hins þriðja sem handtekinn var í nótt.

Friðrik segir að rannsókn málsins haldi áfram en eftir á að klára yfirheyrslur yfir mönnunum tveimur sem handteknir voru í dag. Einnig verður farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Friðrik segir mennina ekki hafa gefið neinar skýringar á háttalagi sínu.

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 >>