Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Um 140 dæmdir brotamenn lausir

06. feb 2008

visir.is


Samtals 144 brotamenn sem dæmdir hafa verið í óskilorðsbundna fangelsisrefsingu hafa ekki hafið afplánun í fangelsum landsins, samkvæmt upplýsingum sem Fréttablaðið fékk í gær hjá Fangelsismálastofnun ríkisins.

Til viðbótar þessu eru um það bil 25 einstaklingar sem nýverið hafa hlotið dóma, en ekki er formlega búið að boða inn til afplánunar. Hluta þessara 169 brotamanna verður ef til vill heimilað að afplána með samfélagsþjónustu.

Alls eru 129 einstaklingar í afplánun óskilorðsbundinna fangelsisrefsinga; 120 karlar og níu konur. Af þessum hópi eru fangar í fangelsum 110, þar af sjö konur. Þeir nítján sem ekki eru innan veggja fangelsa eru til að mynda á Vernd, Sólheimum, meðferðarheimilum og fleiri stofnunum. Af þeim sem afplána refsivist nú eru 94 Íslendingar og 16 útlendingar. Þar af eru níu útlendingar sem ekki eru búsettir hér á landi.

Í gæsluvarðhaldi voru í gær 22 einstaklingar, allt karlmenn og tveir yngstu 16 ára. Af þessum hópi eru fimm útlendingar. Sex eintaklingar eru í einangrun og 16 eru í lausagæslu. Samtals eru því í fangelsunum landsins nú 132 einstaklingar, þar af 21 útlendingur.

Syngja gegn fordómum

01. feb 2008

Rappararnir í XXX Rottweiler ætla að styrkja Félag anti-rasista í kvöld.


Fjöldi hiphop- og R&B-tónlistarmanna kemur fram á styrktartónleikum Félags anti-rasista sem verða haldnir á Gauki á Stöng í kvöld.
Á meðal þeirra sem ætla að gefa vinnu sína og vekja um leið athygli á málstaðnum eru XXX Rottweiler, Sesar A, Opee, Kenya og DJ Gauti ásamt magadanshópi Kramhússins.

Húsið opnar klukkan 21 og hefjast tónleikarnir klukkutíma síðar. Aðgangseyrir er eitt þúsund krónur og rennur hann óskiptur til Félags anti-rasista á Íslandi.

Útlendingar sitja við annað borð

01. feb 2008

Árvakur/Steinunn

Innlent | 24 stundir | 1.2.2008 | 05:00

 

Ríkisstjórnin er gagnrýnd fyrir að taka ekki nóg tillit til erlends fiskverkafólks í mótvægisaðgerðum sínum en hún hefur varið 58,5 milljónum til Fjölmenningarseturs á Vestfjörðum. Peningarnir eru nýttir til langtímaaðgerða, t.d. hefur einn starfsmaður verið ráðinn í þróunarverkefni á Egilsstöðum ásamt því að pólskumælandi einstaklingur hefur bæst við starfsfólk stofnunarinnar á Ísafirði, m.a. til að sinna upplýsingagjöf, að sögn Elsu Arnardóttur framkvæmdastjóra.

Svanfríði Jónasdóttur, bæjarstjóra á Dalvík, finnst óskynsamlegt að setja allt féð á einn stað. „Ég hefði viljað að þessum peningum væri dreift meira um landið, þannig að Alþjóðahús í Reykjavík og Alþjóðastofa á Akureyri fengju sinn skerf,“ segir hún og bætir við að þessar stofnanir sinni fleira fólki en Fjölmenningarsetur.

„Það væri meiri mótvægisaðgerð að skapa ný tækifæri fyrir innflytjendur. Rannsóknir sýna að innflytjendur eru hlutfallslega meiri frumkvöðlar en innfæddir. Þess vegna væri mikilvægt að koma upplýsingum um nýsköpunaraðgerðir markvisst á framfæri við útlendinga,“ segir Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss.

Svanfríður bendir á að erlent vinnuafl skiptist í þrennt: Þá sem eru með tímabundið atvinnuleyfi, fólk sem hefur skuldbundið sig til að vera hér áfram og farandverkafólk sem kemur frá Evrópusambandsríki. Fólk með tímabundið dvalarleyfi, skilyrt við atvinnurekanda, getur misst leyfið fái það ekki aðra vinnu fljótlega. Paul Nikolov telur að ef slíku starfsfólki er sagt upp vegna ástæðna eins og samdráttar, eigi fyrirtækið að bera ábyrgð á að finna fólkinu nýja vinnu. „Fyrst og fremst þarf þó tímabundið atvinnuleyfi að vera óbundið atvinnurekanda. Það myndi leysa þennan vanda, þar sem útlendingar sætu þá við sama borð og Íslendingar,“ segir Paul.

Árás á lögreglumenn til ríkissaksóknara á morgun

28. jan 2008

MYND/GVA

Mál fimm Litháa, sem réðust að lögreglumönnum við skyldustörf aðfaranótt föstudagsins 11. janúar, verður að líkindum sent ríkissaksóknara á morgun. Þetta segir Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Mennirnir fimm, sem eru á aldrinum 19-25 ára, voru úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald eftir árásina en þeir eru nú í farbanni til 1. febrúar.

Þrír þeirra voru handteknir á vettvangi en tveir á heimili sínu í Reykjavík. Þurftu fjórir lögreglumenn að leita sér aðhlynningar á slysadeild eftir árásina og voru tveir þeirra voru fluttir þangað með sjúkrabíl.

„Útlendingar eru hér vegna skorts á vinnumarkaðnum“

21. jan 2008

Dane Magnússon

„Þegar ég las fréttina um samtökin Ísland fyrir Íslendinga (ÍFÍ) í Reykjanesbæ vissi ég ekki hvort ég átti að hlæja eða vorkenna þessu fólki. Fyrst og fremst var atvinnuleysi hér á landi undir 1 prósenti fyrir viku skömmu síðan og að segja að útlendingar séu að taka störf frá Íslendingum er ekki satt. Útlendingarnir eru hér því það er skortur á fólki á vinnumarkaðnum,“ segir Dane Magnússon, formaður Félags anti-rasista.

Dane blöskraði þegar hann sá umfjöllun DV um hópinn sem gengur undir heitinu ÍFÍ í Keflavík. „Pólverjar og Ítalir koma hingað og hirða alla byggingarvinnu frá okkur og fólk kemur og hirðir alla fiskvinnu. Síðan er það svarta fólkið sem vinnur ekki einu sinni, það kemur bara hingað og týnist einhversstaðar á vappinu. Þetta er ógeðslegt. Síðan dirfist þetta fólk að ráðast á okkur. Hér segi ég stopp og ekki lengra, nú er komið nóg,“ sagði Kamilla Sigtryggsdóttir, einn meðlimur samtakanna í samtali við DV á þeim tíma. Alls eru 100 manns í samtökunum.

Dane segir einn meðlim samtakanna ÍFÍ hafa sett sig í samband við sig eftir að umfjöllunin birtist og vakið máls á því að hann væri ekki rasisti. „Ég og fleira svart fólk teljum það mikla móðgun að segja að svart fólk hér á landi sé latt. Ég hef unnið á Íslandi frá því ég var sextán ára að minnsta kosti átta tíma á dag og veit um fleiri af afrískum uppruna sem vinna meira en ég. Þau segja í viðtalinu að útlendingar séu að ráðast á þá, en samt sem áður er til fullt af Íslendingum sem ráðast á útlendinga að tilefnislausu og nánast ekkert af því kemur fram í fréttunum. Persónulega finnst mér fjölmiðlarnir beri stóra ábyrgð á fordómunum, til dæmis hvernig þeir koma fréttunum á framfæri, mér finnst óþarfi að segja hvaðan manneskjan kemur sem brýtur lögin. Svo höfum við tekið eftir því að fjölmiðlarnir birti oftar neikvæðar fréttir frekar en jákvæðar um útlendinga,“ segir Dane.

Dane tekur þó undir afstöðu ÍFÍ um að útlendingar sem ætli sér að búa hér á landi eigi að læra tungumálið. Hann segir það aftur á móti taka sinn tíma, enda íslenska mjög erfitt tungumál. „Það tók mig þrjú ár að byrja að tala íslensku en samt sem áður skildi ég hvað fólk var að segja. Það borgar sig að læra íslensku því núna get ég lesið og talað hana og jafnvel rökrætt og þar af leiðandi svarað fyrir mig,“ segir Dane.

 
 

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 >>