Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Óánægja með aðkomu frjálslyndra að tónleikum gegn rasisma

22. feb 2008

Bubbi Morthens og Geir H. Haarde á tónleikunum í Austurbæ á miðvikudagskvöld.Á tónleikum Bubba Morthens gegn rasisma í fyrrakvöld komu formenn ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna skoðunum þeirra á framfæri. Þeirra á meðal var Viðar Guðjohnsen, formaður Félags ungra frjálsyndra. Formaður Félags Anti-rasista, Dane Magnússon segist hissa á þeirri ákvörðun.

 

„Mér finnst skjóta skökku við að flokkur, sem hefur legið undir ámæli í innflytjendamálum, sé með í baráttunni gegn rasisma. Mér finnst þeir hafa sagt nóg undanfarið.“

 

Að sögn Bubba Morthens fannst honum hugmyndin góð, að fá formenn ungliðahreyfingana til að skýra stefnu sína. „Batnandi mönnum er best að lifa segi ég. Hversu oft höfum við séð fólk dásama áfengisdrykkju eina vikuna og fara í meðferð þá næstu? Auk þess spyr ég bara, hver tekur mark á Frjálslynda flokknum?“

 

„Á tónleikunum tíundaði ég stefnu okkar í Félagi ungra frjálslyndra að takmarka flæði innflytjenda í samræmi við vilja og getu þjóðarinnar til að taka á móti þeim,“ segir Viðar Guðjohnsen, formaður félagsins. Aðspurður hvort þær skoðanir hafi hlotið hljómgrunn á tónleikum gegn rasima sagði Viðar: „Nei, engan sérstakan kannski.“

 

Á vefsíðu Viðars segir: „Höfundur er Frjálslyndur þjóðarsinni sem aðhyllist hertari innflytjendalöggjöf og hófsama aðskilnaðarstefnu.“ „Ég er að tala um skoðun mína varðandi aðskilnað við Evrópusambandið. Ég skil að þetta geti valdið misskilningi, en hélt reyndar að ég væri búinn að taka þetta út.“

 

 

Nánar í 24 stundum. Smelltu hér ef þú fékkst ekki 24 stundir í dag.

Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1323209)

12% leikmanna útlendingar

22. feb 2008

Daninn Tommy Nielsen í liði FH í baráttunni gegn HK síðastliðið sumar.Tæplega 280 erlendir knattspyrnumenn hafa leikið í efstu deild hér á landi síðasta áratuginn. Hæsta hlutfall erlendra leikmanna hefur verið í landsbyggðarfélögunum, Leiftri og ÍBV, en Fylkir og Grindavík eru þar skammt undan.

 

Forráðamenn félaga segja mikið áreiti umboðsmanna sem vilja koma sinni „vöru“ á framfæri og í vinnu, en íslensk lið vilja hlúa betur að yngri leikmönnum og virðast ætla að fækka erlendum leikmönnum með tíð og tíma þannig að ungir íslenskir leikmenn komist að.

 


Sjá nánar ítarlega úttekt Sigurðar Elvars Þórólfssonar um erlenda leikmenn í knattspyrnunni á Íslandi í Morgunblaðinu í dag.

 

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/sport/fotbolti/2008/02/22/12_prosent_leikmanna_utlendingar/)

Nýnasistar á Njálsgötunni

21. feb 2008

„Látum ekki fjölmenningu og blöndun kynstofna skemma landið okkar,“ segir í dreifibréfi frá íslensku samtökunum Combat 18, sem komið hafði verið fyrir undir rúðuþurrkum á bifreiðum við Njálsgötu og víðar í Þingholtunum í morgun.

Í dreifibréfinu auglýsa Combat 18 samtökin vefsíðu sem komið var í gagnið upp úr áramótunum. Þar er gert grein fyrir Combat 18 samtökunum sem íslenskum armi hinna herskáu Blood and honour, samtaka nýnasista.

Íbúar sem rætt var við á Njálsgötunni þótti ekki mikið til áróðursins koma, en þótti eðlilegt að vekja athygli fjölmiðla og almennings á því að verið væri að dreifa slíkum áróðri í borginni.
Á vefsíðu íslensku samtakanna er fullyrt að hinn hvíti kynstofn sé í útrýmingarhættu vegna kynblöndunar. Þessu vilji Combat 18 samtökin sporna við. „Það eru okkar mannréttindi,“ segir á síðunni.

Í dreifipésanum sem beið íbúa Þingholtanna í morgun má finna upphrópanir eins og: „Fjölmenningin er útbrunnin!“ og „Stöndum saman og sigrum óvininn!“
Dreifibréfið hefur engan ábyrgðarmann og er óundirritað. Sama má segja um vefsíðuna, þar sem aðeins er gefið upp netfangið nordland-wmu@hotmail.com, en ekkert nafn.

Heimild: dv.is (http://www.dv.is/frettir/lesa/5431)

Kynþáttaofbeldi í Reykjavík

21. feb 2008

Fjórir rasistar réðust fyrirvaralaust á bandarísku veitingamennina Timothy Branson og Chris Lowen fyrir utan bensínstöðina Nesti við Hringbraut. Öskrað var að þeim „Farið aftur til Afríku“. Flest bendir til þess að ofbeldi og einelti í garð innflytjenda sé farið að grassera í stórauknum mæli hér á landi.

Fjallað er um málið í DV í dag.

Heimild: dv.is (http://dv.is/frettir/lesa/5420)






Frjálslyndir enn með áhyggjur af fjölda innflytjenda

20. feb 2008

mynd

Jón Magnússon, þingmaður Frjálsynda flokksins, hefur enn áhyggjur af fjölda innflytjenda hér á landi.

Þessar áhyggjur eru til staðar þrátt fyrir fréttir þess efnis að færri Pólverjar sækist eftir vinnu hérlendis sökum batnandi efnahags- og atvinnuástands í Póllandi.

Þetta kom fram í spjalli við þingmanninn í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun. Hægt er að hlusta á spjallið á þessari slóð.

Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080220/FRETTIR01/80220030&SearchID=73311638689969)

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 >>