Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda tilbúin

07. apríl 2008

mynd

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda. Áætlunin er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.

Jóhanna fól innflytjendaráði að semja framkvæmdaáætlunina í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og samþykkta stefnu um aðlögun innflytjenda.

Meðal helstu verkefna áætlunarinnar er að samin verði löggjöf um aðlögun innflytjenda, að innflytjendur njóti sömu kjara, réttinda og vinnuverndar og aðrir, upplýsingaöflun, rannsóknir um innflytjendamál og miðlun upplýsinga til innflytjenda verði efld, skráningar dvalar- og atvinnuleyfa verði einfaldaðar og samræmdar og að réttur til túlkaþjónustu verði skýrður.

Fyrirmyndir að móttökuáætlunum sveitarfélaga verða samdar og hlutverk ríkis og sveitarfélaga í málaflokknum skýrð, mat og viðurkenning á erlendri starfsmenntun og námi verður einfaldað, efnt verður til átaks gegn fordómum og mismunun og íslenskukennsla og samfélagsfræðsla verður efld.

Framkvæmdaáætlunin verður endurskoðuð að tveimur árum liðnum í kjölfar skýrslu um árangurinn og að þá verði ný áætlun til fjögurra ára lögð fyrir Alþingi. - ghs


Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080407/FRETTIR01/104070145)

Útlendingar spyrja um bótarétt

31. mars 2008

Engar tilkynningar um hópuppsagnir höfðu borist Vinnumálastofnun í lok síðustu viku, að sögn Gissurar Péturssonar, forstjóra stofnunarinnar.

 

Gissur segir að þó gæti einhverra hreyfinga, t.d. í byggingariðnaði, og hafi allmargir útlendingar úr þeim geira lagt leið sína á skrifstofur Vinnumálastofnunar upp á síðkastið til að fræðast um réttindi sín.

 

Byggingarfyrirtækið Stafnás sagði upp 95 starfsmönnum í byrjun mánaðarins, en Gissur bendir á að þær uppsagnir geti ekki allar skrifast á þá efnahagslægð sem nú virðist hafin: „Það er þó klárt að lítil hreyfing í sölu eigna mun væntanlega valda því að hægir á í byggingariðnaði á næstu mánuðum,“ segir Gissur.

 

Bitnar fyrst á útlendingum

Atvinnuleysi mælist enn mjög lítið, og spáir Gissur að ef þrengingar verða á vinnumarkaði muni það fyrst bitna á erlendu vinnuafli. „Þeir hafa margir viljað kynna sér möguleika á að nýta í heimalandi sínu áunnin bótaréttindi. Eins er sennilegt að gengisfall krónunnar snerti sérstaklega illa þá sem senda hluta af launum sínum til heimalandsins, og mögulega verða til þess að sumir þessara starfsmanna sjái sér ekki hag í að stunda frekari störf á landinu.“

 

 

Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/03/31/utlendingar_spyrja_um_botarett/)

Skuggaleg þróun á Íslandi

29. mars 2008

Í umræðum síðasta árið eða svo hefur borið mikið á því að eitt "taboo" í Íslensku þjóðfélagi hefur verið brotið gjörsamlega niður og það er að nú er þjóðerni útlendinga ávallt nefnt í fréttaflutningi.

Áður fyrr þótti það hvetja til fordóma og haturs gegn vissum einstaklingum þjóðflokksins sem áttu enga sök að máli en nú hefur hins vegar orðið breyting á þessu og það til hins verra. Með að tilkynna stöðugt um þjóðerni þeirra sem fremja glæpi er verið að skella skuldinni upp á viss þjóðerni og skipta fólki í hópana "við" og "þeir". Á Morgunblaðsvefnum vekur það mikla athygli að í nánast hvert skipti sem birtist grein um afbrot útlendinga á Íslandi þá verður fréttin að heitum umræðum í bloggheimunum og yfirleitt eru umræðurnar á þá leið að "Ísland geti ekki tekið við fleiri innflytjendum", "Við verðum að sitja harðar aðlögunarreglur" og "Við erum ekki rasistar". Fleiri harðari ummæli en þetta heyrast þó iðulega.

Þeir sem berjast gegn fordómum virðast hinsvegar hvergi láta sjá sig þegar þetta andlega ofbeldi gagnvart erlendu fólki á sér stað og fáir láta á sér kræla í umræðum um þetta málefni. Það skýrist hinsvegar vel á því að þeir sem hafa hvað hæst um glæpi fárra útlendinga af vissu þjóðerni hafa ráðist harkalega gegn hverjum þeim sem vogar sér að minnast á málið frá mannréttindarlegu sjónarmið.

Um daginn skrifaði ég grein á síðu Félags Anti-Rasista um misheppnaða tónleika gegn rasisma og var ég kallaður öllum illum nöfnum fyrir. Ég var kallaður lygari, mannorðsmorðingi,grunnhygginn, rætinn og þeir voru ófáir innan viss stjórnmálaflokks sem réðust að persónu minni og Félagi Anti-Rasista fyrir að hafa birt þessa grein og fólkið lýsti því yfir að það sem ég skrifaði væri stefna Félags Anti-Rasista. Það eru hinsvegar ósannindi. Ég er enginn talsmaður félagsins og ekki hef ég átt þátt í stefnumótun þeirra. Þeim sem vilja kynna sér stefnu félagsins er hins vegar bent á síðuna www.antirasista.net.

Það vekur vissulega upp spurningar um raunverulega afstöðu fólks sem skrifar svona hvers vegna það ráðist svona hatrammlega gegn manni og samtökum sem berjast gegn fordómum á Íslandi? Þetta fólk hefur aldrei fordæmt ÍFÍ, Combat 18 og Skaparann fyrir hreint og klárt mannhatur þeirra. Þetta sama fólk minnist svo ekki á það þegar rasistar í Danmörku myrða Tyrkneskan dreng vegna uppruna hans.

Við sem berjumst gegn fordómum verðum að fara láta meira í okkur heyra, umræðan á Íslandi er orðin óhuggnaleg og bara tímaspursmál hvenær farið verði að minnast á litarhátt manna í fréttaflutningi, er það óhugsandi? alls ekki því það þótti svo sannarlega óhugsandi fyrir aðeins örfáum árum síðan að minnast á þjóðerni manna í hverri einustu frétt um glæpi á Íslandi og erlendis.

Látum því ekki mála okkur út í horn, eflumst í baráttunni og leggjum okkur tvöfalt fram fyrir málstaðinn okkar. Við hina sem hafið hæst í umræðunni um útlendinga vil ég aðeins segja: Hættið að flokka fólk eftir þjóðerni þeirra og öðrum slíkum þáttum og komið fram við einstaklinga sama af hvaða litarhætti, trúarbrögðum og þjóðerni eins og þið viljið láta koma fram við ykkur sjálf.


Aðeins þannig mun fólk geta lifað í sátt og samlyndi.


Sveinn Helgason

Útlendingahatur eykst

24. mars 2008


 







Fordómar í garð útlendinga hér á landi hafa aukist undanfarið að mati Dane Magnússonar, formanns félags anti-rasista. Hann segir að útlendingum sé oft ekki hleypt inn á skemmtistaði auk þess sem margir verði fyrir árásum vegna útlendingahaturs.


Dane segir að árásirnar séu oft alvarlegar og það sé aðeins tímaspursmál hvenær einhver slasast alvarlega í slíkri árás. Hann leggur áherslu á fræðslu gegn fordómum í skólum og að passað sé upp á að útlendingar njóti sömu kjara og Íslendingar. Og hann gagnrýnir fjölmiðla fyrir að einblína á neikvæðar fréttir af útlendingum.


http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item197994/

Segja pólska bófa kúga landa sína

23. mars 2008

Lögreglan hefur enn ekki handsamað allt að átta manns sem eru grunaðir um að hafa ráðist á og slasað 7 manns í húsi við Keilufell í Reykjavík í gær. Fórnarlömbin segja pólskar glæpaklíkur herja á aðra Pólverja á Íslandi.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfestir frásögn fórnarlambanna, að pólskir glæpamenn beiti landa sína kúgunum og ofbeldi. Vitað sé um nokkur slík tilfelli, og tilkynnt hafi verið um eitt þeirra í síðustu viku. Hún segir þó líkamsárásarmálið í Keilufellinu enn í rannsókn, of snemmt sé að fullyrða um málavexti.

 

Sjö karlmenn búa í húsinu og hlutu allir áverka á höfði og víðar um líkamann. Tveir handleggsbrotnuðu og einn lá enn á sjúkrahúsi nú síðdegis. Einn hinna slösuðu sagðist hafa setið í stofunni og horft á sjónvarpið, þegar einn árásarmaðurinn vatt sér inn og tók að berja hann með kylfu. Hann var því fegnastur að tvær konur, sem höfðu verið í heimsókn í húsinu skömmu áður, voru farnar þegar árásarmennina bar að garði.


Mennirnir voru allir augsýnilega í talsverðu uppnámi þegar þeir ræddu við fréttastofu Sjónvarps og fjórir þeirra ætla að flytja úr húsinu á næstu dögum af ótta við að aftur verði ráðist á þá. Þeir segjast ekki vita hvað árásarmennirnir áttu sökótt við þá. Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gær fjóra menn vegna árásarinnar, þeir voru í dag úrskurðaðir í gæsluvarðhald til. Allt að átta árásarmenn eru enn ófundnir en lögreglu grunar að þeir búi í Reykjanesbæ.


http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item197916/

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 >>