Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Yfir 50 danskir nasistar hafa skráð sig í herinn og heimavarnarliðið

16. apríl 2008

mynd

Danski nasistaflokkurinn hefur sent að minnsta kosti 50 af meðlimum sínum inn í danska herinn og heimavarnarliðið. Þar eiga þeir að læra að drepa útlendinga.

Þetta kemur fram í viðtali við Jonni Hansen leiðtoga danska nasistaflokksins sem birt er í Ekstra Bladet í dag. Hann segir að hann hvetji meðlimi flokksins til að skrá sig í herinn því þar geti þeir lært að meðhöndla og nota vopn á alveg löglegan hátt. Og það sé einkum ástæðan fyrir þessu.

Sjálfur hefur Jonni Hansen verið meðlimur heimavarnarliðsins eða hjemmeværnet eins og það kallast. Ferill hans var þó ekki langur áður en hann var rekinn þaðan með skömm.

Þeir nasistar sem skráðir eru nú láta hinsvegar lítið á sér bera í hernum og heimavarnarliðinu en Hansen segir að hann ætli að nota sér þjónustu þeirra í komandi borgarastríði gegn útlendingum.

Hansen er ekkert að skafa af hlutunum og segir að þegar borgarastríðið skelli á séu þeir tilbúnir til að skjóta alla útlendinga af öðrum kynþáttum en hvítum.


Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080416/FRETTIR02/548574364)

„Pólska samfélagið hefur lokast dálítið“

16. apríl 2008

Stanislaw Bukowski.Málefnu meintra afbrotamanna frá Póllandi eru mjög til umræðu meðal samlanda þeirra hér á landi og valda töluverðum áhyggjum hjá öllum þeim fjölda Pólverja sem kæra sig ekkert um afbrot eða þá sem tengjast þeim, segir Pólverjinn Stanislaw Bukowski, sem búið hefur hérlendis og starfað undanfarin sjö ár.

 

Hann segir umræðuna um samfélag Pólverja á köflum afar undarlega og til að mynda geti hann engan veginn fengið botn í sögusagnir um „verndartolla“ sem skyndilega urðu á hvers manns vörum eftir árásina í Keilufelli þar sem Pólverjar komu við sögu.

 

„Ég fer mikið á milli staða vegna vinnu minnar í byggingargeiranum og er alltaf að spyrja samlanda mína um þetta en heyri aldrei neitt,“ segir hann. „Þetta er einhver misskilningur. Hvorki ég né þeir sem ég tala við kannast við að hér sé pólsk mafía sem níðist á samlöndum sínum. Það er óhugsandi að mínu mati og ég verð ekki var við slíkt þótt ég sé alltaf að spyrja aðra Pólverja,“ segir hann

 

„Nú fara í hönd þeir tímar sem enginn vill ráða Pólverja í vinnu af því að þeir eru allt í einu orðnir „glæpaþjóð“.“

 

Stanislaw bendir á Pólverjar hafi sjálfir haft vissar ranghugmyndir um Ísland og það hafi ekki byggt upp mjög jákvæða ímynd þeirra hérlendis. „Í uppsveiflunni undanfarin þrjú ár hafa Pólverjar komið hingað til að vinna og þar var fólk sem talaði engin tungumál utan móðurmálsins og reyndi ekki einu sinni að læra önnur mál,“ bendir hann á.

 

„Þeir hafa hugsað sem svo að hér væri nóga vinnu að hafa og þá þyrfti maður ekkert að leggja sig fram um að læra tungumálið. Þess vegna finnst mér pólska samfélagið hafa lokast dálítið. Fólk heldur sig í hópum út af fyrir sig eða bara heima hjá sér og tekur ekki mikinn þátt í hinu íslenska samfélagi.“

 

Stanislaw getur ekki dæmt um sekt eða sakleysi grunaðra samlanda sinna hérlendis „en við kærum okkur alls ekki um einstaklinga sem skaða ímynd Pólverja“, segir hann. „Það verður að hafa í huga að Pólverjar á Íslandi eru 15-20 þúsund talsins, álíka og helmingurinn af íbúafjölda Kópavogs.“

 

Stanislaw segir vissulega geta verið svarta sauði í hverri hjörð og þeir spilli fyrir heildinni.

 

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/16/polska_samfelagid_hefur_lokast_dalitid/)

Pólskur nemandi vann upplestrarkeppni

10. apríl 2008

Lukasz Serwatko, pólskættaður nemandi í Heiðarskóla vann fyrstu verðlaun á Stóru upplestrarkeppninni sem fór fram í gærkvöldi í Duushúsum í Keflavík. Lukasz hafði þar betur en íslenskir keppinautar hans meðal annars með upplestri á ljóðum Steins Steinarrs.


Í öðru sæti í keppninni varð Hera Ketilsdóttir úr Myllubakkaskóla og Ingibjörg Ýr Smáradóttir úr Njarðvíkurskóla í því þriðja. Sex skólar áttu fulltrúa í þessari lokaumferð keppninnar.




Heimild: dv.is (http://dv.is/frettir/lesa/7387)

Hinn grunaði er útlendingur

09. apríl 2008

Athyglisverð ráðstefna föstudaginn 18. apríl.

 Ráðstefna um umfjöllun fjölmiðla um innflytjendur og afbrot verður haldin í Salnum, Kópavogi, föstudaginn 18. apríl 2008 kl. 13.00-17.45. Alþjóðahús, Félags- og tryggingamálaráðuneytið/ Fjölmenningarsetur, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Blaðamannafélag Íslands og Kópavogsbær standa að ráðstefnunni og er markmiðið að opna umræðuna meðal hlutaðeigandi. Fundarstjóri er Birgir Guðmundsson, lektor í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri.

 

13.00 Setning - Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss
13.05 Ávarp - Jóhanna Sigurðardóttir, Félags- og tryggingamálaráðherra
13.10 Eru afbrot útlendinga öðruvísi en Íslendinga? - Rannveig Þórisdóttir, deildarstjóri upplýsinga-og áætlanadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
13.30 Afbrot, staðalmyndir og innflytjendur - Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands
13.50 Sjónarhorn blaðamannsins - Rúnar Pálmason, blaðamaður hjá Morgunblaðinu
14.10 The media- a tool or an obstacle for integration? (Fjölmiðlar - hjálp eða hindrun í aðlögun innflytjenda?) - Arash Mokhtari, verkefnisstjóri hjá Quick response í Svíþjóð
15.00 Innflytjendur og erlent vinnuafl í fjölmiðlum 2007- Magnús Heimisson, forstöðumaðurFjölmiðlagreininga

15.20 Kaffihlé

 

15.35 Málstofa I - Umræðan á götunni/bloggið

Árni Matthíasson, verkstjóri mbl.is - Bloggið: Ábyrgðarlaust hjal? 
Joanna Dominiczak, kennari og stjórnarmaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna - Útlendingar í fjölmiðlum
Málstofustjóri: Þór Jónsson, forstöðumaður almannatengsla í Kópavogi
 
Málstofa II - Formleg upplýsingagjöf
Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarfulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu - Hvað má lögreglan segja?
Áslaug Skúladóttir, formaður Félags fréttamanna og fréttamaður á Útvarpinu - Skiptir þjóðerni fólks máli í fréttum af afbrotum?
Málstofustjóri: Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Íslands

16.15 Kaffihlé

16.25 Samantekt frá málstofum

16.45 Pallborðsumræður
Dane Magnússon, formaður Félags Anti-rasista
Þorbjörn Broddason, prófessor við Háskóla Íslands
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins

17.15 Ráðstefnuslit - Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs
17:20 Léttar veitingar



Pólverjar kynna menningu í Reykjanesbæ

09. apríl 2008

Hópur pólskra íbúa í Reykjanesbæ stendur fyrir kynningu á pólskri menningu á laugardaginn. „Kynningunni er ekki beinlínis beint gegn fordómum heldur  erum við að horfa til fjölmenningarsamfélagsins,“ segir Dröfn Rafnsdóttir, í fjölmenningarnefnd bæjarins.

Pólverjar eru í miklum meirhluta meðal erlendra íbúa á Suðurnesjum. Vart hefur orðið við undiröldu kynþáttahaturs á svæðinu og upp spruttu samtökin Ísland fyrir Íslendinga, sem ítarlega hefur verið fjallað um í DV.

Dröfn segir að kynningar á vegum fjölmenningarnefdarinnar hafi farið reglulega fram í fjögur ár og starfið hafi undið upp á sig þannig að nú séu innlendir siðir kynntir fyrir erlendum íbúum.

Pólski hópurinn mun kynna pólska siði og matarmenningu með ræðuhöldum, spjalli og myndasýningum. Sérverslun með pólska matvöru leggur kynningunni lið með gjöfum.


Heimild: dv.is (http://dv.is/frettir/lesa/7298)

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 >>