19. maí 2008
Veggspjöld merkt svissneska þjóðernisflokknum SVP hafa valdið nokkurri umræðu síðustu daga. Voru þau víða hengd upp í miðbænum um helgina. Samkvæmt heimildum Vísis er það svissneski listamaðurinn Christoph Büchel sem stendur fyrir veggspjöldunum sem eru hluti af listgjörningi.
Starfsmenn framkvæmda- og eignasviðs borgarinnar eyddu töluverðu púðri í að rífa veggspjöldin niður um helgina og öðru stóru skilti var komið fyrir uppi á Kjalarnesi í morgun.
Einhverjir héldu að útlendingahatur lægi að baki veggspjöldunum en á þeim er mynd af þremur hvítum kindum að ýta einni svartri. Fyrirsögnin er síðan „Tryggjum öryggið".
Gjörningurinn er eins og fyrr segir hluti af sýningunni Ferðalag sem er sýning á vegum Skatafells, miðstöðvar myndlistar á Austurlandi, Sláturfélagsins á Egilstöðum og menningarmiðstöðvarinnar á Eiðum. Sýningarstjóri er Björn Roth, sem er sonur hins víðfræga Dieter Roth.
Gjörningurinn samanstendur af fyrrnefndum veggspjöldum en Christoph hefur einnig smalað saman svörtum kindum inn í girðingu í Austurdal þar sem tveimur svissneskum fánum er flaggað.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080519/FRETTIR01/39896268)
19. maí 2008
Stóru skilti merkt Svissneska þjóðarflokknum undir fyrirsögninni „Tryggjum öryggið" hefur verið komið fyrir uppi á Kjalarnesi og blasir við ökumönnum á leið að Hvalfjarðargöngum.
Skiltið er fjórir til fimm fermetrar á stærð og hefur verið fest niður kyrfilega eftir því sem myndatökumaður Stöðvar 2 sagði Vísi. Skiltið hefur að geyma áróður gegn innflytjendnum en það sýnir þrjár hvítar kindur stugga einni svartri út af sínu svæði. Skiltið er merkt SVP, Svissneska þjóðarflokknum, sem er hægriöfgaflokkur sem notið hefur vinsælda þar í landi. Á skiltinu stendur einnig „Okkar friðhelgi - mínir heimahagar".
Veggspjöld með sömu skilaboðum voru límd víða á staura og veggi í miðbænum um helgina og unnu starfsmenn framkvæmda- og eignasviðs borgarinnar að því að þrífa þau af.
Friðrik Smári Björgvinsson hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var nýbúinn að heyra af skiltinu þegar Vísir náði tali af honum. Hann sagði ekki vitað hverjir væru þarna á ferð en að lögregla myndi rannsaka málið ef um kynþáttahatur væri að ræða.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080519/FRETTIR01/38722131)
18. maí 2008
Plakötum svissneska stjórnmálaflokksins SVP sem greint var frá að dreift hefði verið um miðborg Reykjavíkur í kvöldfréttum Sjónvarps í gær, voru líka hengd upp víðsvegar á Akureyri í gær. Því virðist að um skipulagðar aðgerðir sé að ræða.
Í kvöldfréttum Sjónvarps í gær var greint frá því að plakötum hafi verið komið upp í miðborg Reykjavíkur og við Hvalfjarðargöng með kynþáttafordómum. Plakötin vísa til svissneska stjórnmálaflokksins SVP sem dregið hefur upp svarta mynd af innflytjendum. Hundruð auglýsingaplakata voru hengd upp víðsvegar um borgina þar sem meðal annars stóð: „Okkar friðhelgi, mínir heimahagar“
Samkvæmt heimildum dv.is höfðu sömu merkingar verið settar upp á Akureyri í gær. Heimildarmaður dv.is, sem ættaður er frá Sviss og búsettur á Akureyri, segir að plakötin hafi verið hengd upp víðsvegar um bæjinn. Meðal annars á hina fjölförnu göngugötu bæjarins og við verslanir. Sjálfur hafi hann farið um bæinn í gærkvöldi og fjarlægt auglýsingaspjöldin, og segist hann hafa orðið gríðarlega reiður vegna þessa.
Hann vildi ekki að greint yrði frá nafni sínu af ótta við hefndaraðgerðir þeirra sem standa að baki þessari dreifingu kynþáttaníðs. „Ég held að baki þessu standi hugsanlega einhverjir hægri-öfgamenn sem líklegir eru til að beita ofbeldi gegn fólki af erlendum uppruna hér á landi.“
Svisslendingar eru ekki rasistar
Hann er allt annað en sáttur með að verið sé að dreifa kynþáttaníð hér á landi í nafni þjóðar sinnar þar sem Svisslendingar séu umburðalynd þjóð sem vilji ekki sjá að ímynd þeirra sé dregin niður á þetta plan. SVP sé stjórnmálaflokkur sem hafi fengið sitt fylgi út á allt annað en þjóðernishyggju og kynþáttaníð. Í síðustu kosningum hafi flokkurinn fengið sæmilegt fylgi en eftir kosningar hafi kveðið við annan og alvarlegri öfgatón hjá flokknum. Hann segir Svisslendinga allt annað en sátta með þetta og hann óttast afleiðingarnar ef þessi samtök séu að ryðja sér til rúms hér á landi.
„Sviss er þungamiðja mannréttinda í Evrópu og þar er rík hefð fyrir virðingu gagnvart fólki af erlendum uppruna enda er Sviss fjölþjóðasamfélag. Þessi plaköt og þessi samtök standa gegn öllum þeim gildum sem við Svisslendingar erum aldir upp við og stöndum fyrir, og þeir Svisslendingar sem staddir eru hér á landi vilja alls ekki láta tengja sig við kynþáttahatur sem þetta.“ Hann segir SVP stjórnmálaflokkinn vera orðinn vandamál í Sviss og það sé hans ósk að hann verði ekki vandamál hér á landi líka.
Viðmælandi dv.is segist hafa heyrt í sendiherra Sviss á Íslandi í gær í kjölfar málsins og segir hann mikla óánægju gæta meðal síns fólks hér á landi. Sendiherrann hafi sagt honum að það yrði að komast að því hverjir standi að baki þessum plakötum.
Heimild: dv.is (http://dv.is/frettir/lesa/8896)
15. maí 2008
Félag Litháa á Íslandi verður stofnað á laugardaginn í Alþjóða húsinu. Markmið félagsins er fyrst og fremst að kynna menningu Litháa, vera talsmenn fyrir Litháa búsetta á Íslandi og bæta ímynd þeirra hérlendis.
Í tilkynningu sem forsvarsmenn félagsins sendu frá sér segir að félagið verði vettvangur menningarviðburða, félagsstarfs meðal Litháa og mun leita eftir samstarfi við aðila víða í samfélaginu. Stofnfundurinn hefst klukkan 19 á laugardag.
Heimild: dv.is (http://dv.is/frettir/lesa/8795)
15. maí 2008
Dane Magnússon, formaður Félags anti-rasista, segir að hvorki hann né félagið taki þátt í svo barnalegum aðgerðum að grýta hús með eggjum, þó þeir vorkenni Viðari Helga Guðjohnsen ekki neitt. Eins og dv.is greindi frá í gær var heimili Viðars Helga, formanns Landssambands ungra Frjálslyndra, grýtt með eggjum aðfaranótt mánudagsins. Í viðtali við dv.is sagði Viðar að líklega væri málið tengt bréfi sem dreift var í hverfinu hans á dögunum þar sem spurt var: „Býr rasisti í þínu hverfi?“.
Viðar hefur átt í útistöðum við Félag anti-rasista á Íslandi undanfarið en hann íhugaði meðal annars að fara í mál við félagið vegna niðrandi skrifa um sig á vefsíðu félagsins þar sem hann er sakaður um kynþáttahatur.
Taki ábyrgð á orðum sínum
Í yfirlýsingu sem dv.is barst frá formanni Félags anti-rasista segir að þar á bæ sé litið á Viðar sem mann sem sé að reyna að festa fót sinn í pólitík og að hann geri hvað sem er til að það takist. „Hann hefur móðgað mjög marga og þá meina ég fólk sem er ekki einu sinni skráð í Félag Anti-rasista. Því miður verður Viðar að taka ábyrgð á því sem hann lætur út úr sér, samkvæmt mínum upplýsingum þá á hann nóg af óvinum.“ segir Dane Magnússon, formaður félagsins.
Dane segir að hann hafi ekkert á móti Frjálslynda flokknum, líkt og Viðar Helgi hafi sakað hann um og nefnir menn eins og Kristinn H. Gunnarsson sem séu að gera góða hluti. Bendir Dane hinsvegar á að Viðar Helgi og Magnús Þór Hafsteinsson gætu lært mikið af Kristni um hvernig eigi að vera fagmenn.
„Ég vil taka það fram að við í F.A.R erum tilbúin í samstarf með öllum þeim flokkum sem vinna gegn fordómum.“ segir Dane og bætir við:
Kasta ekki eggjum en vorkenna Viðari ekki neitt
„Ég hef haft minni tíma í að vera á blogginu því ég er búinn að vera upptekinn í að búa til fræðsluefni fyrir félagið en ég fékk símtal um daginn og mér sagt að Viðar væri að reyna að bendla okkur við að hafa kastað eggjum á húsið hans, ég vil taka það fram að ég né félagið tökum ekki þátt í svona barnalegum aðgerðum. Ég vona að Viðar hafi leitað til lögreglunnar gagnvart öllum þeim árásum sem hann hefur bendlað okkur við og finni gerandann svo hann hætti að kenna okkur um án þess að vera með sannanir.“
Dane segist sjálfur hafa fengið ýmsar hótanir undanfarið „en ekki er ég að væla eða benda á Viðar eða hans félag um það, þegar við stofnuðum þetta félag þá vissum við að við myndum eignast nokkra óvini. Félag Anti-rasista er einbeitt á að gera jákvæða hluti vegna fræðslu á fordómum. Viðar er greinilega að reyna að komast lengra í pólítik og er tilbúinn að nota öll tækifæri til að komast í fjölmiðla. Stundum er það ekki hvað þú segir sem gerir mann að rasista heldur hvernig þú orðar hlutina. Við tökum ekki þátt í svona smá árásum, þó við séum ekki að vorkenna Viðari neitt.“ segir formaður Félags anti-rasista.
Þungar ásakanir í bloggfærslu
Hvað skrifin á heimasíðu félagsins sem Viðar Helgi íhugaði að kæra segir Dane að um hafi verið að ræða grein sem einstaklingur hafi skrifað sem orðið hafði vitni af Viðari dreifa hatursbréfi á vegum Combat 18 rétt eftir að hann flutti ræðu á tónleikum Bubba Morthens gegn fordómum. Combat 18 eru alþjóðleg samtök herskárra kynþáttahatara, sem fjallað var um á dögunum eftir að vefsíða félagsins var opnuð á Íslandi þar sem tilkynnt var að félagið hefði tekið til starfa hér á landi. „Vitnið skrifaði grein um það sem hann varð vitni af og við birtum það á bloggsíðu okkar eftir staðfestingum frá honum, en tókum greinina síðan niður því okkur barst fagmannlegt bréf frá einum flokksmanni Frjálslyndra um að taka það niður. “ segir Dane.
Tengd frétt: Eggjum grýtt í hús bloggara
Heimild: dv.is (http://dv.is/frettir/lesa/8735)