03. júlí 2008
Í morgun klukkan 7:45 hlupu tveir menn inn á flugbrautina við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þeir voru handteknir og eru nú í fangeklefa hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Brotin eru litin mjög alvarlegum augum og geta varðað fangelsi allt að sex árum.
Stefán Thordersen flugvallarstjóri staðfesti í samtali við Vísi að tveir menn hefðu hlaupið inn á flugverndarsvæðið þar sem þeir voru síðan handteknir.
Samkvæmt heimildum Vísis voru mennirnir að mótmæla brottför Keníamannsins Paul Ramses, sem fluttur var til Ítalíu í morgun. Mál hans hefur verið nokkuð í umræðunni undanfarið en hann sótti um pólitískt hæli. Paul var ofsóttur í heimalandi sínu og sótti því um hæli. íslensk stjórnvöld ákváðu hinsvegar að vísa honum úr landi án þess að taka umsókn hans til meðferðar.
Eyjólfur Kristjánsson, fulltrúi lögreglustjórans á suðurnesjum, sagði í samtali við Vísi að öryggisverðir flugvallarstjóra hefðu óskað eftir aðstoð við handtöku mannanna í morgun. Þeir hefðu verið handteknir og settir í fangaklefa. „Þeir verða yfirheyrðir á eftir. Svona mál eru litin mjög alvarlegum augum og geta valdið stór hættu," segir Eyjólfur. Athæfi sem þetta getur varðað fangelsi allt að sex árum samkvæmt heimildum Vísis.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080703/FRETTIR01/363732936)
25. júní 2008
Lögfræðingur hefur nú verið ráðinn til starfa hjá sýslumanninum á Ísafirði tilað vinna að sérverkefnum á sviði útlendingamála á vegum dóms- ogkirkjumálaráðuneytisins. Hann starfar undir stjórn og handleiðslu sýslumanns.Verkefnið er ótímabundið.
Lögfræðingurinn mun í upphafi fástarfsþjálfun hjá Útlendingastofnun, sýslumanninum á Ísafirði og dóms- ogkirkjumálaráðuneytinu en að því búnu starfa einvörðungu hjá sýsluskrifstofunniá Ísafirði. Verkefni þetta er liður í átaki stjórnvalda til styrktaratvinnulífi á Vestfjörðum og hafa Haukur Guðmundsson, settur forstjóriÚtlendingastofnunar og Kristín Völundardóttir, sýslumaður á Ísafirði, haft vegog vanda af undirbúningi og framkvæmd þess, að því er segir í tilkynningu.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/06/25/serverkefni_i_utlendingamalum_unnin_a_isafirdi/)
11. júní 2008
Skráð atvinnuleysi í maí var 1% og voru þá að jafnaði 1739 manns á atvinnuleysisskrá, sem eru 22 fleiri en í apríl sl. Atvinnuleysishlutfallið var óbreytt frá því í apríl en í maí í fyrra var atvinnuleysið 1,1%. Vinnumálastofnun býst við auknu atvinnuleysi í júní og að það verði á bilinu 1-1,3%. Samkvæmt tölum á vef stofnunarinnar voru 2223 skráðir atvinnulausir í dag.
Að sögn Vinnumálastofnunar er atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu 0,8% og 1,4% á landsbyggðinni eða það sama og í apríl á báðum svæðum. Atvinnuleysi meðal karla minnkar milli mánaða, mælist nú 0,8% en var 0,9% í apríl og er það einkum á landsbyggðinni sem atvinnuleysið minnkar meðal karla. Atvinnuleysi kvenna var 1,3% líkt og í apríl, en jókst þó töluvert meðal kvenna á höfuðborgarsvæðinu.
Þeim sem verið hafa á skrá lengur en 6 mánuði fækkaði og voru 506 í lok maí en 538 í lok apríl. Þá var 251 einstaklingur atvinnulaus í meira en eitt ár í lok maí og hefur þeim farið lítið eitt fækkandi síðustu mánuði.
Nýskráningar ríkisborgara frá nýjum ríkjum ESB voru 382 í maí sem er lítið eitt meira en í apríl þegar nýskráningar voru 353. Þetta eru þó mun færri nýskráningar en í maí í fyrra þegar þær voru nærri 700. Gefin voru út 38 ný atvinnuleyfi í maí.
Vinnumálastofnun segir, að oft minnki atvinnuleysið milli maí og júní. Í fyrra minnkaði atvinnuleysið um 7% milli þessara mánaða og var þá 1% í júní og 1,1% í maí. Atvinnulausum í lok maí hafi þó fjölgað frá lokum apríl eða um 115, og um 10 frá sama tíma árið 2007. Þegar allt sé talið sé því líklegt að atvinnuleysið í júní 2008 muni aukast og verða á bilinu 1%-1,3%.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/06/11/atvinnuleysi_maeldist_1_prosent_i_mai/)
06. júní 2008
Lögregla í Stokkhólmi handtók í dag 114 nýnasista, sem tóku þátt í göngu í tilefni af þjóðhátíðardegi Svíþjóðar. Mennirnir heilsuðu að nasistasið og hrópuðu slagorð, þar á meðal Heil Hitler. Að sögn lögreglu var þetta túlkað sem kynþáttaofsóknir og því voru mennirnir handteknir.
Fréttavefur Dagens Nyheter hefur eftir talsmanni lögreglu, að grípa megi inn í ef grunur leikur á að brotið sé gegn hegningarlögum, sem banna ofsóknir gegn einstökum þjóðflokkum.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2008/06/06/nynasistar_handteknir_i_stokkholmi/)
05. júní 2008
Boðað hefur verið til íbúafundar síðdegis á morgun fyrir þá íbúa á jarðskjálftasvæðinu, sem eru af erlendum uppruna. Fundurinn verður haldinn í Vallaskóla, Sólvöllum, á Selfossi.
Á fundinum munu verða túlkar sem túlka á pólsku, ensku og litháísku. Eru atvinnurekendur hvattir til að láta boð um fundinn berast á meðal starfsmanna sem ekki tala íslensku.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/06/05/fundur_fyrir_ibua_af_erlendum_uppruna/)