03. júlí 2008
Skipulögð hafa verið mótmæli fyrir utan dómsmálaráðuneytið á hádegi á morgun þar sem skorað er á Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og Hauk Guðmundsson að snúa Paul Ramses heim og fjalla um mál hans hérlendis þar sem fjölskylda hans er. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send hefur verið á fjölmiðla.
„Síðastliðinn desember tók Paul þátt í borgarstjórnarkosningum í Naíróbí, en flokkur hans náði ekki kosningu. Eftir kosningarnar urðu margir stjórnarandstæðingar fyrir ofsóknum. Vegna ótta um líf sitt kom Paul hingað til lands í janúar og sótti um pólitískt hæli. Honum barst aldrei svar við beiðni sinni, jafnvel þó Katrín Theodórsdóttir héraðsdómslögmaður hafi í mars ítrekað beiðni um að mál Pauls væri tekið upp.
Í gær komu lögregluþjónar fyrirvaralaust á heimi Pauls og handtóku hann fyrir framan konu hans og þriggja vikna son þeirra. Hann var færður á lögreglustöðina á Hverfisgötu þar sem hann eyddi nóttinni. Í morgun var hann svo sendur til Ítalíu og mál hans sett í hendur stjórnvalda þar í landi, en samkvæmt Dyflinnarsamningnum hafa íslensk stjórnvöld leyfi til þess að senda hann til Ítalíu, vegna þess að Paul millilenti þar á leið sinni til Íslands," að því er segir í tilkynningu.
Heimild: mbl.is (http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/07/03/motmaeli_skipulogd_fyrir_utan_domsmalaraduneytid/)
03. júlí 2008
Íslandsdeild Amnesty International sendi Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra bréf í kvöld vegna máls Paul Ramses sem vísað var úr landi í dag. Farið var með Paul til Ítalíu en aðbúnaður pólitískra flóttamanna þar í landi hefur lengi verið gagnýndur.
Vísir birtir bréf Amnesty til Björns í heild sinni hér fyrir neðan
Háttvirti dómsmálaráðherra
Í ár eru sextíu ár liðin frá því að Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt. Í fjórtándu grein hennar segir: „Rétt skal mönnum vera að leita og njóta griðlands erlendis gegn ofsóknum." Réttur flóttamanna er tryggður í alþjóðasamningum og er þeirra mikilvægastur flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1951.
Ríkisstjórnir Evrópuríkja hafa á undanförnum árum þróað með sér sameiginlega stefnu í málefnum flóttamanna og gert ýmsar ráðstafanir sem takmarka aðgang flóttafólks að yfirráðasvæði þeirra. Amnesty International hefur ítrekað gagnrýnt að hin evrópska samvinna í málefnum flóttamanna þ.m.t. Dyflinnar-samkomulagið hefur leitt til þess að almenn viðmið framkvæmdaráðs Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna eru ekki í heiðri höfð. Samtökin hafa hvatt ríkisstjórnir til að tryggja að aðgerðir þeirra og stefna grafi ekki undan þeirri vernd sem flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna og aðrir alþjóðlegir mannréttindasamningar veita.
Það er mikið áhyggjuefni að íslensk yfirvöld taka æ færri hælisumsóknir til efnislegrar meðferðar og senda þess í stað hælisleitendur til þriðja lands. Á árinu 2007 voru 24 ákvarðanir teknar um endursendingu hælisleitenda á grundvelli Dyflinnar-samkomulagsins.
Íslensk yfirvöld hafa nú ákveðið að taka ekki til efnislegrar meðferðar beiðni Paul Rames Oduor frá Kenía sem sótt hefur um hæli hér á landi. Hann hefur nú verið sendur til Ítalíu, en aðbúnaður hælisleitenda þar hefur m.a. verið gagnrýndur af Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Amnesty International.
Íslandsdeild Amnesty International hvetur íslensk stjórnvöld til að endurskoða ákvörðunina ekki síst í ljósi þess að með endursendingu Paul Rames Oduor til ítalíu hafa íslensk yfirvöld gengið á rétt nýfædds sonar hans til að njóta umönnunar beggja foreldra.
Virðingarfyllst
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir
Framkvæmdastjóri
Íslandsdeildar Amnesty International
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080703/FRETTIR01/673909878)
03. júlí 2008
Íslandsdeild Amnesty International hefur sent Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra bréf þar sem farið er fram á að íslensk yfirvöld endurskoði ákvörðun sína um að taka ekki til efnislegrar meðferðar mál Paul Ramses Oduor frá Kenía sem sótti um hæli hér á landi. Með bréfinu fylgdi ítarleg skýrsla Amnesty International um aðbúnað hælisleitenda á Ítalíu.
„Í ár eru sextíu ár liðin frá því að Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt. Í fjórtándu grein hennar segir: „Rétt skal mönnum vera að leita og njóta griðlands erlendis gegn ofsóknum.“ Réttur flóttamanna er tryggður í alþjóðasamningum og er þeirra mikilvægastur flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1951.
Ríkisstjórnir Evrópuríkja hafa á undanförnum árum þróað með sér sameiginlega stefnu í málefnum flóttamanna og gert ýmsar ráðstafanir sem takmarka aðgang flóttafólks að yfirráðasvæði þeirra. Amnesty International hefur ítrekað gagnrýnt að hin evrópska samvinna í málefnum flóttamanna þ.m.t. Dyflinnar-samkomulagið hefur leitt til þess að almenn viðmið framkvæmdaráðs Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna eru ekki í heiðri höfð. Samtökin hafa hvatt ríkisstjórnir til að tryggja að aðgerðir þeirra og stefna grafi ekki undan þeirri vernd sem flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna og aðrir alþjóðlegir mannréttindasamningar veita.
Það er mikið áhyggjuefni að íslensk yfirvöld taka æ færri hælisumsóknir til efnislegrar meðferðar og senda þess í stað hælisleitendur til þriðja lands. Á árinu 2007 voru 24 ákvarðanir teknar um endursendingu hælisleitenda á grundvelli Dyflinnar-samkomulagsins.
Íslensk yfirvöld hafa nú ákveðið að taka ekki til efnislegrar meðferðar beiðni Paul Ramses Oduor frá Kenía sem sótt hefur um hæli hér á landi. Hann hefur nú verið sendur til Ítalíu, en aðbúnaður hælisleitenda þar hefur m.a. verið gagnrýndur af Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Amnesty International.
Íslandsdeild Amnesty International hvetur íslensk stjórnvöld til að endurskoða ákvörðunina ekki síst í ljósi þess að með endursendingu Paul Ramses Oduor til ítalíu hafa íslensk yfirvöld gengið á rétt nýfædds sonar hans til að njóta umönnunar beggja foreldra," að því er segir í bréfi
Íslandsdeildar Amnesty International.
Heimild: mbl.is (http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/07/03/amnesty_fer_fram_a_ad_stjornvold_endurskodi_akvordu/)
03. júlí 2008
Haukur Guðmundsson, settur forstjóri,Útlendingastofnunnar segir aðeiginkona Keníamannsins Paul Ramses dveljist ólöglega í landinu, og þvíhafi ekki verið hægt að skoða beiðni hans um pólitískt hæli hér á landimeð hliðsjón af fjölskylduaðstæðum. Að óbreyttu verður konu Ramsesvísað úr landinu ásamt barni þeirra. Fréttastofa Ríkisútvarpsins skýrði frá þessu.
Heimild: mbl.is (http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/07/03/eiginkona_rames_ologlega_i_landinu/)
03. júlí 2008
"Við ætluðum að reyna að bjarga lífi Paul Ramses. En því miður held ég að það hafi ekki tekist," segir hinn 21 árs gamli Haukur Hilmarsson sem í morgun hljóp inn á flugbraut á Kelflavíkurflugvelli.
Með Hauki í för var hinn 31 árs gamli Bandaríkjamaður Jason. Bæði Haukur og Jason hafa áður komist í kast við lögin eftir mótmælaaðgerðir sem þeir hafa tekið þátt í. Meðal annars á vegum Saving Iceland.
Haukur og Jason segjast hafa hlupið út á flugbrautina til þess að stöðva flugtak vélar sem flytja átti pólitíska flóttamanninn Paul Ramses til Ítalíu.
"Við fórum út á flugbrautina tveimur mínútum áður en hún átti að taka á loft. Við hlupum meðfram flugvélinni og svo fram fyrir hana og þaðan út á flugbrautina," segir Haukur. "Þar hoppuðum við og veifuðum höndunum. Ætlunin var að reyna að fá flugvélina við að hætta við flugtak," segir Haukur.
Ekki leið á löngu þar til hópur öryggisvarða var sendur á eftir tvímenningunum. Þeir skiptu þá liði. Haukur hljóp í eina átt en Jason í aðra. Öryggisverðir hlupu Jason uppi en Haukur segist hafa verið keyrður í jörðina af opinni hurð í bíl sem öryggisverðirnir notuðu til þess að elta hann.
Þeim var svo haldið þar til lögregla kom á svæðið og flutti þá á brott. Hauki og Jason var svo sleppt rétt eftir klukkan eitt í dag.
Aspurður hvort hann hafi gert sér grein fyrir því að öryggi fólks hafi hugsanlega verið stofnað í hættu með þessari mótmælaaðgerð svarar Haukur:
"Við gerðum okkur grein fyrir því að við værum örugglega að brjóta gegn öryggisreglugerðum sem ekki voru settar að ástæðulausu. En við mátum það þannig að hættan væri afar lítil. Mannréttindasjónarmiðin sem við vorum að reyna að koma á framfæri vógu þyngra".
Haukur segist ekki óttast afleiðingar gjörða sinna þótt allt að sex ára fangelsisvist gæti beðið hans. "Ég sé ekki eftir neinu. Nú vona ég bara að Ingibjörg Sólrún geri allt sem í hennar valdi stendur til þess að bjarga lífi Paul Ramses."
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080703/FRETTIR01/514987692)