06. júlí 2008
Rúmlega 12 hundruð manns hafa sett nafn sitt á undirskriftarlista sem stofnaður hefur verið til stuðnings Keníamannsins Paul Ramses sem vísað var úr landi í fyrradag.
Paul Ramses er nú staddur í Róm á Ítalíu þar sem hann dvelur á gistiheimili fyrir flóttamenn. Mál hans verður tekið fyrir hjá lögregluyfirvöldum snemma í fyrramálið en búist er við að hann dvelji á Ítalíu næstu þrjár vikur.
Hátt í hundrað manns mættu fyrir utan dómsmálaráðuneytið síðastliðinn föstudag til að mótmæla því að Útlendingastofnun fjallaði ekki um mál hans. Þá mættu fjörutíu manns fyrir utan ráðuneytið í gær.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080706/FRETTIR01/836168237)
05. júlí 2008
Vísir náði tali af Keníamanninum Paul Ramses sem staddur er í Róm fyrir stundu. Hann er ekki bjartsýnn og segist biðja fyrir íslenskum ráðamönnum. Erfiðast þótti Paul að yfirgefa mánaðargamlan son sinn, sem hann var kannski að sjá í síðasta skipti.
„Ég er mjög stressaður en að öðru leyti líður mér ágætlega," sagði Paul Ramses þegar Vísir náði af honum tali á stað sem kallaður er Sentrone á ítölsku.
„Þetta lítur út eins og gistiheimili en er í raun staður fyrir flóttamenn. Hér er fólk frá Palestínu, Afghanistan og Súdan. Fólkið hér er mjög indælt og kemur vel fram við mig," sagði Paul en hann var fluttur til Ítalíu í fyrradag, án þess að yfirvöld á Íslandi fjölluðu um umsókn hans um pólitískt hæli hér á landi.
Ramses segir þó að á leið sinni til Ítalíu hafi hann verið meðhöndlaður sem glæpamaður. Tveir íslenskir lögreglumenn og tveir þýskir hafi fylgt honum hvert fótmál, meira að segja þegar hann fór á klósettið í flugstöðinni.
Að sögn Pauls eru næstu skref að fara með bréf á lögreglustöðina í Róm þar sem hann útskýrir mál sitt. „Við verðum að mæta mjög snemma á mánudagsmorgun, helst fyrir klukkan sjö," segir Paul en flestir sem hann hefur talað við síðan hann kom eru hissa á því hversvegna hann sé eiginlega í landinu.
„Fólk spyr hversvegna ég sé ekki á Íslandi þar sem öll mín sönnunargögn eru og mínar úrskýringar. Hérna þurfa menn hinsvegar að byrja frá byrjun og ef þeir trúa því ekki hver ég er, þá óttast ég að verða sendur til Kenía."
Paul var búinn að heyra af stuðningi þjóðarinnar og aðspurður um hvað honum fyndist um mótmælin við Dómsmálaráðuneytið í gær sagði Paul:
„Konan mín sagði mér aðeins frá því og ég er mjög þakklátur fyrir að þetta fólk skuli standa með mér á þessari stundu. Fólk hefur líka hjálpað konunni minni og syni mínum og við biðjum fyrir þessu fólki," sagði Paul sem saknar Fídels Smára sonar síns mjög mikið.
„Það hefði verið ánægjulegt að hafa hann hjá sér á þessari stundu og það var erfitt að kveðja hann. Ég fór klukkan sex um morguninn og hugsaði um að kannski væri ég að sjá hann í síðasta sinn," sagði Paul en Fídel Smári er skírður í höfuðið á knattspyrnumanninum Eiði Smára Guðjohnsen.
„Ég hef verið aðdáandi Eiðs Smára síðan hann spilaði með Chelsea. Mér langaði meira að segja að bjóða honum í veislu með syni mínum áður en ég fór út, en það var ekki hægt. Það væri gaman ef einhver myndi segja honum að afrískur maður hefði skírt son sinn í höfuðið á honum," segir Paul.
Aðspurður um hvernig honum hefði liðið þegar hann var sestur um borð í flugvélina úti á Keflavíkurflugvelli og óvissan ein beið hans sagði Paul:
„Það var átakanlegt. Ég hugsaði um að nú væri ég að fara frá eiginkonu minni og nýfæddum syni, en einnig væri ég að yfirgefa friðsamt og fallegt land og vini sem hafa hjálpað okkur með hugsjónirnar í Kenía, hugsjónir um að byggja skóla."
Og Ramses skilur ekki hversvegna íslensk yfirvöld fjölluðu ekki um mál hans.
„Það var ekki hlustað á mál mitt á Íslandi, hvað þá á Ítalíu. Ég reikna með því að vera settur í hendurnar á yfirvöldum í Kenía, þar sem ég verð líklega tekinn af lífi. Ég bið fyrir þessu fólki."
Heimildir: visir.is (http://www.visir.is/article/20080705/FRETTIR01/46361817)
05. júlí 2008
Þingflokkur Vinstri grænna hefur óskað eftir því að alsherjarnefnd Alþingis verði kölluð saman til að fjalla um mál Keníamannsins Paul Ramses. Varaformaður Framsóknarflokksins segir stjórnvöld ósamstíga í málinu.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri Grænna, segir að þó farið sé að reglum í máli Ramses samkvæmt ákvæðum Dyflinnarsamningsins sem heimilar ríkjum að senda hælisleitendur aftur til þess lands sem þeir komu fyrst til innan Schengen svæðisins, beri að hafa mannúðarsjónarmið að leiðarljósi í svona málum.
Síðastliðinn vetur fluttu þingmenn Vinstri grænna, þeir Atli Gíslason og Paul Nikolov, breytingatillögu við lög um málefni útlendinga þess efnis að hælisleitendur hefðu rétt á að vera hér á landi, meðan mál þeirra yrðu tekið til umfjöllunnar innan stjórnsýslunnar eða í réttarkerfinu.
Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslyndaflokksins tekur í sama streng og harmar að mál Rames hafi ekki verið tekið fyrir og mannúðarsjónarmið hafi átt að ráða för. Siv Friðleifsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, segir stjórnvöld ósamstíga í málinu.
Eins og kunnugt er var Keníamanninum Paul Ramses vísað af landi brott fyrir helgi, án þess að beiðni hans um pólítískt hæli yrði tekin formlega til umfjöllunnar. Kona hans og nýfætt barn eru enn hér á landi, en konan dvelst ólöglega í landinu að sögn Útlendingastofnunnar.
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item216157/
05. júlí 2008
„Mér finnst þetta mjög ömurlegt að við skulum ekki geta tekið málið fyrir. Ég veit að við getum ekki tekið við öllum sem koma hingað og kalla sig flóttamenn og ber fyrir sig allskonar sögur sem engin fótur er fyrir þegar farið er að kanna það," sagði Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins í dag um mál Paul Ramses flóttamanns sem sendur var úr landi nýlega.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Frjálslynda flokknum. Þar segir enn fremur að Guðjón bendi á að ekki sé vafi á að maðurinn hafi verið að flýja ákveðnar aðstæður í heimalandi sínu, aðstæður sem ógni líf hans.
Aðspurður hvort Útlendingastofnun hefði átt að taka öðruvísi á málinu sagði Guðjón að það væri sín skoðun að svo væri. Þetta tilfelli hefði átt að skoða út frá mannúðarsjónarmiðum og út frá því að hér geti hreinlega verið um líf mannsins að tefla. Hann taldi að ekki væri hægt að líkja þessu máli við önnur mál flóttamanna hér á landi.
„Ég veit það ekki. Úr því að menn fóru ekki strax í að skoða málið. Hann hefði átt að fá að njóta vafans þegar hann var hér," sagði Guðjón aðspurður um hvort fara ætti ti Ítalíu og sækja manninn.
Guðjón gaf ekki mikið fyrir þau rök Útlendingastofnunar að málið sé fordæmis gefandi ef það hefði verið höndlað á annan hátt en gert var.
„Nei, það tel ég ekki vera" sagði Guðjón að lokum.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080705/FRETTIR01/140207609)
05. júlí 2008
Hælisleitendum sem komið hafa hingað til lands frá þriðja ríki hefur öllum verið snúið aftur til landsins sem þeir komu frá, á grundvelli Dyflinarsamningsins. Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar hvetur dómsmálaráðherra til að taka umsókn Paul Ramses um pólítískt hæli hér á landi til umfjöllunar.
Í svari dómsmálaráðherra, sem barst í maí, kemur fram að öllum hælisleitendum sem hingað komu til lands frá þriðja ríki var snúið aftur til landsins sem þeir komu frá. Brottvísun Keníamannsins Paul Rames er nýjasta dæmið um hvernig íslensk stjórnvöld hafa nýtt sér ákvæði Dyflinnarsamningsins vegna hælisleitenda.
Mörður lagði fram fyrirspurn á Alþingi til dómsmálaráðherra í apríl um framkvæmd Dyflinnarsamningsins á Íslandi. Þar var meðal annars óskað eftir upplýsingum um hversu margir hælisleitendur á Íslandi frá þriðja ríki, sem er landið sem hælisleitandinn kemur frá, hafa verið sendir til aðildarríkis á árunum 2003 til 2007 samkvæmt Dyflinnarsamningnum.
Mörður hvetur dómsmálaráðherra til að taka umsókn Ramses til umfjöllunnar og vill að á meðan mál hans verði tekið til skoðunnar verði hann fluttur aftur til Íslands.