07. sept 2008
Lögreglumenn telja að árásum á sig hafi fjölgað og brotin orðið grófari en áður. Formaður Landssambands lögreglumanna óttast að aukið ofbeldi gegn lögreglunni tengist starfsemi alþjóðlegra glæpasamtaka hér á landi. Fimm Litháar voru í nótt handteknir eftir árás á lögregluþjón í heimahúsi.
Ráðist var á lögreglumann í nótt við heimahús í Kópavogi. Hann var ásamt félaga sínum kallaður þangað vegna hávaða. Þegar þeir reyndu að ræða við húsráðendur var ráðist á annan þeirra, hann skallaður, tekinn hálstaki og svo snúinn niður. Fjölmennt lögreglulið var kallað til aðstoðar og beitti það varnarúða og kylfum til að yfirbuga árásarmennina. Fimm voru handteknir. Sá sem fyrir árásinni varð slasaðist ekki alvarlega.
Lögreglumenn telja að árásum á sig hafi fjölgað undanfarið. Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, segir brotin gegn þeim orðin grófari og meiri óvirðingu vera fyrir lögreglunni. Hann segir lögreglumenn sjá aukningu á ofbeldi útlendinga í sinn garð og þverrandi virðingu.
Snorri vill ekkert segja um þjóðerni þessara hópa. Árásarmennirnir í nótt voru samkvæmt heimildum fréttastofu Litháar en undanfarin misseri hafa fréttir af afbrotum Litháa nokkuð reglulega ratað í fjölmiðla.
Snorri segir ofbeldið grófara hjá þeim hópum útlendinga sem hann talar um. Hann bendir á að skýrslur hafi verið birtar um að erlend glæpasamtök teygji anga sína hingað til lands og óttast að aukið ofbeldið í garð lögrelgunnar tengist því.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080907/FRETTIR01/765259907)
06. sept 2008
Útlendingastofnun hefur úrskurðað að Mark Cumara, 23 ára Þorlákshafnarbúi, þurfi að vera farinn af landi brott um miðjan september. Móðir hans og uppeldisfaðir eru bæði íslenskir ríkisborgarar og hafa búið á Íslandi síðasta áratug. Systir hans, amma hans og afi á Íslandi eru líka íslenskir ríkisborgarar. Sjálfur hefur hann búið í Þorlákshöfn hjá foreldrum sínum í fimm ár.
„Við þekktum ekki reglurnar og vorum ekki vöruð við því að allt í einu yrði hann ólöglegur heima hjá sér.“ Alexander skilur ekki hversvegna vegna fjölskyldan fær ekki frest. „Útlendingastofnun segir nei.“
Hann trúir því ekki að vísa eigi syninum úr landi, frá foreldrum sínum, heimili og vinnustað, þar sem allt hefur verið í góðu lagi árum saman.
„Hann á bara eina gamla ömmu á Filippseyjum, hvernig á hann að lifa þar? Mamma hans fékk ríkisborgararétt 2006 en hann ekki, en okkur datt samt ekki í hug að hann ætti bara að fara frá landinu. Ofan á önnur vandræði er nú verið að útvega Mark nýtt vegabréf með mikilli fyrirhöfn. Sú vinna fer í gegnum Noreg, því Filippseyjar eru ekki með sendiráð hér á landi. Við höfum hvorki flugmiða né vegabréf ennþá og vildum helst fá frest og hjálp við að gera Mark löglegan í landinu, því hann er ekkert minni Íslendingur en við,“ segir Alexander.
Útlendingastofnun segir foreldra bera ábyrgð á því að börn hafi dvalarleyfi þar til þau eru lögráða og eftir það beri þau ábyrgðina sjálf. Stofnunin geti ekki tekið það að sér. Lög kveði á um að útlendingur í ólögmætri dvöl fari úr landi.
Mál Marks er ekki í brottvísunarferli, en engu að síður er honum gert að hverfa úr landi fyrir 16. sept. Hann bað um lengri frest en fékk ekki. Sækja þarf skriflega um frest og tilgreina ástæður.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/09/06/kom_17_ara_sendur_ur_landi_23_ara/)
02. sept 2008
Óánægja er meðal lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu með skipulagsbreytingar sem gerðar voru í vor. Lögreglumenn telja að ekkert rauneftirlit sé lengur með útlendingum og hætta sé á því að rannsóknir á brotum þeirra geti skaðast þar sem ekki sé hægt að sinna þeim sem skyldi. Starfsemin þykir ekki nógu markviss lengur.
Skipulagsbreytingar áttu sér stað 1. apríl þegar útlendingaeftirlitsdeild var lögð niður og þeir lögreglumenn sem þar störfuðu voru færðir til, ýmist í rannsóknadeild eða á almennar vaktir. Lögreglumenn, sem ganga almennar vaktir, sinna öllum þeim erindum sem þangað berast sjö daga vikunnar, ekki bara málefnum útlendinga og eftirliti með þeim. Rannsóknadeild sinnir alls kyns rannsóknum.
Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, kannast við að almennrar óánægju gæti innan lögreglunnar með þróunina í málefnum útlendinga. „Menn hafa bent á að frumkvæðisvinna lögreglu verði lakari og þá er ég að tala um eftirlit til dæmis þar sem farið er á staði þar sem útlendingar eru við störf til að kanna hverjir eru án atvinnu- og dvalarleyfa í landinu," segir hann.
Snorri bendir á að „sérstök deild með nokkrum lögreglumönnum" hafi haft „eingöngu það verkefni að sinna eftirliti með útlendingum og atvinnu- og dvalarleyfum. Nú hefur þessum verkefnum verið bætt á almennu deild lögreglunnar og einhverjir starfsmenn færðir yfir en ekki allir þó. Þetta er komið á störfum hlaðna og undirmannaða deild," segir hann.
Snorri bendir á að lögreglan í nágrannalöndunum hafi misst yfirsýn yfir þennan málaflokk því ekki hafi verið haldið nógu vel á spöðunum frá upphafi. Í nýútkominni greiningarskýrslu ríkislögreglustjóra sé talað um hættuna á því að erlendar glæpaklíkur geti skotið rótum hér. Í ljósi þess telur hann þróunina vera áhyggjuefni. „Þegar svona skýrslur liggja fyrir hefði maður haldið að það ætti að efla svona starfsemi," segir hann.
Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, segir að skipulagsbreytingarnar hafi orðið til góðs. Nú sinni lögreglan útlendingamálum sjö daga vikunnar, ekki fimm eins og áður. Hann telur lögregluna sinna eftirlitinu „ekki minna en áður". Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn telur rannsóknir í betri farvegi en áður og segir að þeim sé jafnvel betur sinnt en áður. ghs@frettabladid.is
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080902/FRETTIR01/306101156&SearchID=7333007884366)
25. ágú 2008
Rosemary Athieno eiginkona Paul Ramses var himinlifandi yfir komu eiginmanns síns í nótt þegar Vísir heyrði í henni í dag . „Ég er mjög hamingjusöm kona," segir Rosemary.
Hún og Fídel Smári, sonur þeirra hjóna ætla á Leifstöð í nótt að taka á móti Paul. „Það er ekki hægt annað en að taka á móti honum," segir Rosemary.
Rosemary var ekki búin að heyra í Paul sjálfum í dag en hafði heyrt fréttirnar frá Katrínu Theódórsdóttur, lögfræðingi hans. „Ég hef verið að reyna að ná í Paul í dag en hef ekkert náð í hann," segir Rosemary sem ætti þó ekki að þurfa að bíða lengi eftir að sjá og heyra í manni sínum.
Hörður Torfason tónlistamaður sem hefur staðið fyrir mótmælum vegna meðferðar Útlendingastofnunar á Paul Ramses sagðist ekki ætla að hafa móttöku fyrir Paul Ramses þar sem hann komi um miðja nótt.
„Við höfðum nokkur verið að ræða um að hafa einhvers konar móttöku fyrir hann ef hann hefði komið til Keflavíkur að degi til. Fyrst hann kemur að nóttu þá leyfum við þeim hjónunum bara að hittast í ró og næði," segir Hörður.
„Ætli ég hringi ekki í hann á morgun og hitti hann kannski. Ég hef verið í sambandi við Rosemary, eiginkonu hans." Hörður segist þó ekki hafa þekkt til þeirra hjóna áður en Paul Ramses var rekinn úr landi en meðferðin á honum af hálfu Útlendingarstofnunar hafi gengið fram af honum.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080825/FRETTIR01/591552145)
25. ágú 2008
Paul Ramses mun koma til landins í nótt að sögn Katrínar Theódórsdóttur lögfræðings hans. Ramses hefur dvalið á Ítalíu frá því í byrjun júlí þegar Útlendingastofnun synjaði því að taka hælisumsókn hans til umfjöllunar hér á landi.
„Ég á von á því að kappinn lendi í nótt, þetta hefur gengið mjög vel. Hann á bókaðan miða frá Mílanó í kvöld og ég held að flugvélin eigi að lenda um tvö leytið í nótt á Íslandi. Ef allt gengur vel ætti hann að koma með þeirri vél," segir Katrín.
Dóms-og kirkjumálaráðuneytið úrskurðaði á föstudaginn að umsókn Paul Ramses um stöðu flóttamanns ætti að taka til efnislegrar umfjöllunar hjá Útlendingastofnun eftir að Katrín hafði kært ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa honum til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarsamningsins um miðjan júlí síðastliðinn.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080825/FRETTIR01/532345581)