Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Allt að 20 þúsund án atvinnu

30. des 2008

Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysið verði mest í byggingariðnaðiVinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysi aukist hratt næstu mánuði og fari í 9‐10% á vormánuðum 2009. Hæst fari atvinnuleysi í maí samhliða því að námsmenn koma út á vinnumarkaðinn og eigi erfitt með að fá störf. Atvinnuleysi fer svo lækkandi í júní og búast megi við að það lækki áfram fram í september í takt við hefðbundna árstíðarsveiflu. Erfitt er þó að spá fyrir um hversu mikil sú lækkun verður, en reiknað er með að meðalatvinnuleysi ársins 2009 verði á bilinu 7‐9%. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar um horfur á vinnumarkaði á árinu 2009.

 

Mest atvinnuleysi í byggingariðnaði

 

Nú eru um 10% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá á hlutabótum á móti hlutastarfi og fjölgar þeim hratt sem fá atvinnuleysisbætur á móti minnkuðu starfshlutfalli.

 

Atvinnuleysi verður mest í byggingariðnaði. Vinnuafli mun fækka mikið í greininni við brottflutning stórs hluta þeirra útlendinga sem þar hafa starfað auk þess sem búast má við talsverðum brottflutningi Íslendinga sem leitar sér atvinnu erlendis. Áætlað er að atvinnuleysi muni hæst fara upp undir 30% í greininni í mars og apríl en lækka nokkuð þegar kemur fram á sumar. Óvissa er þó mikil um verkefnastöðu greinarinnar í sumar.

 

Gert er ráð fyrir að vinnuafl í mannvirkjagerð fari niður í um átta þúsund manns undir vor, úr um 16.000 þegar mest var fyrr á þessu ári.

 

Spá 15% atvinnuleysi í verslun

 

Atvinnuleysi í verslun mun fara í um 15% í mars og haldast svipað fram í maí en fer þá lækkandi samfara aukinni verslun ferðamanna og heildverslun samfara auknum umsvifum almennt yfir sumarmánuðina. Í samgöngum og flutningastarfsemi, iðnaði og fiskvinnslu má gera ráð fyrir að atvinnuleysi fari í milli 10 og 15% síðla vetrar.

 

Í samgöngum og flutningastarfsemi er samdrátturinn nú þegar kominn fram að stórum hluta, en mun koma fram í iðnaði og fiskvinnslu á næstu mánuðum. Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi fari hátt í 10% í flestum þjónustugreinum utan opinbera geirans. Atvinnuleysi verður minna í öðrum greinum.

 

Það er mat Vinnumálastofnunar að um 16.000 útlendingar hafi verið á vinnumarkaði síðsumars 2008. Þeim hefur fækkað hratt síðan og fáir útlendingar hafa flust til landsins í haust.

 

Gert ráð fyrir að í byrjun árs 2009 verði nálægt 10.000 útlendingar á íslenskum vinnumarkaði og að þeim muni fækka eitthvað áfram á árinu 2009. Stór hópur útlendinga er búinn að festa hér rætur að meira eða minna leyti og má gera ráð fyrir að nálægt 9.000 erlendir ríkisborgarar muni verða á íslenskum vinnumarkaði um mitt ár 2009. Atvinnulausum útlendingum hefur fjölgað hratt síðustu mánuði og voru tæplega 1.000 um síðustu mánaðarmót og hefur fjölgað töluvert síðan. Talið er að þeirri fjölgun sé að mestu lokið og hæst fari fjöldi útlendinga á atvinnuleysisskrá í um 1.400 í janúar.

 

Íslendingar munu leita eftir atvinnu í útlöndum

 

Allnokkur fjöldi Íslendinga mun flytja af landi brott á fyrri hluta árs 2009 í atvinnuleit sem meðal annars má ráða af fjölgun á útgefnum vottorðum til Íslendinga sem vilja fara í atvinnuleit erlendis.

 

Gera má ráð fyrir að draga muni verulega úr búferlaflutningum til útlanda í sumar en að einhver aukning verði á ný næsta haust í takt við hefðbundna árstíðarsveiflu í atvinnulífinu, bæði fólks sem fer utan í atvinnuleit og fólks sem fer í nám erlendis. Vinnumálastofnun áætlar að nettó fjöldi þerra sem hverfa af vinnumarkaði á árinu 2009 vegna brottflutnings til útlanda verði milli 5 og 7.000 manns.

 

Sjá skýrslu Vinnumálastofnunar í heild

 

Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/12/30/allt_ad_20_thusund_an_atvinnu/)

Útlendingar eru 6,8% landsmanna

25. des 2008

Útlendingar hafa verið fjölmennir í byggingariðnaði.Þann 1. desember voru 21.434 erlendir ríkisborgarar skráðir hér á landi. Þeim fjölgaði um 2.871 á árinu. Mikil fjölgun var framan af ári en undir lok þess fækkaði erlendum ríkisborgurum. Útlendingar eru nú 6,8% landsmanna, en þetta hlutfall var 3,6% fyrir þremur árum.

 

Langflestir erlendir ríkisborgarar koma frá Póllandi eða 8.488. Næstfjölmennastir eru Litháar, en þeir eru 1.322. 984 Þjóðverjar voru skráðir hér á landi 1. des. s. og 966 Danir.

 

Í fréttatilkynningu frá Hagstofu Íslands segir að framan af árinu hafi  mánaðarlegur fjöldi aðfluttra einstaklinga verið fleiri en nokkurt annað ár. Þetta eigi þó fyrst og fremst við um karla. Frá febrúar til maí á þessu ári fluttust mánaðarlega um 600 fleiri karlar en konur til landsins. Talsvert dró úr flutningum til landsins um mitt árið og í júlí, ágúst og í nóvember fluttust fleiri karlar frá landinu en til þess. Brottflutningurinn var mestur í nóvember en þann mánuð voru brottfluttir karlar 645 fleiri en aðfluttir.

 


Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/12/25/utlendingar_6_8_prosent_landsmanna/)

Pólverjar kaupa flugmiða aðra leið

16. des 2008

Dregið hefur úr atvinnumöguleikum á Íslandi. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Dregið hefur úr atvinnumöguleikum á Íslandi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Gunnar Gunnarsson.

Þriðjudagur 16. desember 2008 kl 15:12

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Merkjanleg aukning hefur orðið í því hjá Iceland Exrpess að Pólverjar kaupi flug aðra leiðina heim til Póllands, en ekki flugmiða til baka líkt og verið hefur undanfarin ár. Andrés Jónsson, almannatengill fyrir Iceland Express, segir hins vegar að flugfélagið hafi ekki tekið sérstaklega eftir því að fleiri Íslendingar en vanalega, hafi keypt sé flugfarmiða aðra leið.

Mikið hefur verið rætt um hugsanlegan fólksfjölda af Íslandi vegna aukins atvinnuleysis, en ef marka má upplýsingar frá Iceland Express, þá virðist landflóttinn ekki hafinn.

http://www.dv.is/frettir/2008/12/16/polverjar-kaupa-flugmida-adra-leid/

Ungir kynþáttahatarar dæmdir í Moskvu

15. des 2008

Ungmennin ganga í réttarsal í dag.Hópur ungmenna sem mynduðu klíku leidda af kynþáttahatri hlaut í dag dóm fyrir 20 morð sem framin voru í Moskvu frá ágúst 2006 fram í október 2007. Margir árásarmannanna voru undir lögaldri þegar morðin voru framin og hlutu því vægari dóm en ella.

 

Að morðunum 20 undanskildum gerði klíkan einnig tilraun til að myrða 12 til viðbótar. Árásunum var beint gegn innflytjendum í borginni sem ekki voru af slavneskum uppruna. Sum morðin tóku ungmennin upp og birtu á internetinu. Ungmennin hlutu misþunga dóma, sá þyngsti var 20 ár en tveir meintir forsprakkar klíkunnar hlutu aðeins 10 ár hvor þar sem þeir voru undir lögaldri þegar þeir frömdu morðin. Aðrir dómar voru á bilinu 6 til 12 ár í fangelsi.

 

Saksóknari fullyrti að hin dæmdu hefðu stofnað skipulagða klíku með því yfirlýsta markmiði að myrða innflytjendur frá Asíu- og Kákasuslöndum gömlu Sovétríkjanna, eða með öðrum orðum þá sem ekki væru af hvítum kynþætti. Hann sagði að jafnvel í Moskvu, borg þjakaðri af kynþáttatengdu ofbeldi, hefði glæpaalda þessarar klíku slegið allt út.

 



Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2008/12/15/ungir_kynthattahatarar_daemdir/)

Yfir 8.000 manns eru nú atvinnulausir

11. des 2008

mynd

Í dag 11. desember eru 8.205 manns skráðir atvinnulausir en í lok nóvembermánaðar voru 6.350 skráðir atvinnulausir.

Reikna má með að atvinnuleysi muni enn aukast á næstunni, enda ljóst að samdráttur er enn framundan í mörgum atvinnugreinum.

 

Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að atvinnulausum hefur því fjölgað um 206 manns hvern virka dag desembermánaðar.

Vinnumálastofnun býst við að atvinnuleysi í desembermánuði muni aukast verulega og verða 4,5%-5% en yfirleitt eykst atvinnuleysi á þessum tíma árs.

 

Í samantekt Vinnumálastofnunar kemur fram að alls hafi 157 manns fengið laun sín greidd úr ábyrgðarsjóði launa í nóvembermánuði sem er aukning frá því í október þegar 135 manns þáðu laun sín úr sjóðnum.

Samtals 16 fyrirtæki tilkynntu um gjaldþrot í nóvembermánuði en það sem af er ári hafa 277 fyrirtæki orðið gjaldþrota.



Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20081211/VIDSKIPTI06/75409839/-1)

1 2 >>