27. sept 2008
Allt bendir til þess að atvinnuleysi muni aukast hratt á næstu mánuðum. Þrjú fyrirtæki tilkynntu um fjöldauppsagnir í gær
Icelandic Ground Service á Keflavíkurflugvelli ætlar að segja upp 20 starfsmönnum um næstu mánaðamót. Fram kom í fréttum stöðvar tvö í gær að ástæða uppsagnarinnar sé verkefnaskortur. Þá tilkynnti Vodafone ennfremur um uppsagnir tuttugu starfsmanna í gær og ÞG verktakar ætla að segja upp tugum manna um næstu mánaðamót.
Hátt í þúsund manns hafa misst vinnuna í hópuuppsögnum í sumar og vel á annað þúsund manns í byggingariðnaði hafa misst vinnuna á árinu. Vænta má að þessar uppsagnir fari að gæta í atvinnuleysistölum um næstu mánaðamót.
Þó atvinnuleysi hafi aðeins aukist lítillega á undanförnum mánuðum bendir allt til þess að ástandi eigi eftir versna á næstunni. Atvinnuleysi var 1,2 prósent í síðasta mánuði sem jafngildir því að tvö þúsund og eitt hundrað manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.
Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysi verði 1,2 til 1,5 prósent í september.
Alþýðusamband Íslands gerir ráð fyrir því að atvinnuleysi muni aukast hratt í vetur og þá spáir greiningardeild Landsbankans því að atvinnuleysi nái hámarki í ársbyrjun 2011 og verði þá 4 prósent.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080927/FRETTIR01/253816687/-1)
22. sept 2008
Ríflega þriðjungur svarenda á aldrinum 18 til 35 ára í könnun sem Félagsvísindastofnun vann fyrir ASÍ telur eðlilegt að Íslendingar njóti betri kjara á vinnumarkaði en fólk af erlendum uppruna. Þessi niðurstaða stingur í stúf við önnur svör sem leiddu m.a. í ljós að langflestir töldu að ASÍ ætti að leggja áherslu á launa-, jafnréttis- og mannréttindamál í starfi sínu.
„Þetta er verulegt áhyggjuefni,“ segir Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, um afstöðu fjölda svarenda til launakjara erlendra starfsmanna. „Það skiptir mjög miklu máli að missa ekki dampinn í umræðunni um „Einn rétt og ekkert svindl“ sem var yfirskrift hennar á sínum tíma. Þessi viðhorf gefa fullt tilefni til að velta því fyrir sér hvað þetta unga fólk er að hugsa.“
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/09/22/telja_edlilegt_ad_utlendingar_seu_med_lakari_laun/)
14. sept 2008
Talið er hugsanlegt að upp hafi komist um mansalsmál hér á landi í aðgerð lögreglu í Reykjanesbæ á fimmtudag. Fram kom í fréttum Útvarpsins í dag að málið tengist kínverskri konu sem þar hefur dvalist og kínverskum karlmanni sem hafi verið stöðvaður á Keflavíkurflugvelli með vegabréf sem talið sé að hafi verið ætlað konunni.
Samkvæmt því sem fram kom í fréttum Útvarpsins telur lögregla að til hafi staðið að konan greiddi glæpaklíku hluta af launum sínum, hefði hún fengið hæli hér á landi.
Málið er í rannsókn og fást ekki frekari upplýsingar um það sem stendur.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/09/14/mansalsmal_rannsakad/)
14. sept 2008
Hælisleitandinn Farzad Rahmanian, frá Íran, sem sat fyrir utan lögreglustöðina í Reykjanesbæ í mótmælaskyni í rúman sólarhring í gær er hættur sinni mótmælasetu.
Lögreglan ók honum heim í gærkvöldi. „Hann kom og vildi fá far, það var náttúrulega ekki gott veður hérna, ausandi vatnsveður annað slagið," sagði varðstjóri lögreglunnar í samtali við mbl.is.
(http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/09/14/haelisleitandanum_ekid_heim/)
14. sept 2008
Stöðugt fleiri útlendingar gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Erlendir ríkisborgarar voru innan við einn af hverjum tíu sem komu við í fangageymslum í ársbyrjun 2007 en í júlí í sumar var einn af hverjum fjórum af þeim sem voru vistaðir í fangageymslum með erlent ríkisfang.
Þegar tölur yfir þá sem eru handteknir og látnir gista í fangageymslum eru skoðaðar kemur í ljós að útlendingum hefur fjölgað verulega sem hlutfall af heildarfjölda þeirra sem gista fangageymslur. Í ársbyrjun í fyrra var hlutfallið lítið, eða aðeins 6,2 prósent, en fór alveg upp í tæp 20 prósent í fyrrahaust.
Á þessu ári hefur hlutfallið verið lægst rúm 13 prósent og farið nokkrum sinnum vel yfir 20 prósent. Í sumar náði það hæstu hæðum, eða 25 prósentum, og í ágúst var það 23 prósent.
Árni Þór Sigmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segist ekki vita hvers vegna útlendingum hefur fjölgað hlutfallslega í fangageymslum lögreglunnar. Hann kann litlar skýringar á því hverjir gisti fangageymslur. Útlendingum hafi fjölgað í landinu síðustu ár og sú þróun geti endurspeglast í fangaklefum. Ekki megi gleyma því að sami maður geti komið oft við sögu og það geti skekkt samanburðinn. Þá hafi útlendingum fjölgað á Íslandi og þá liggi í hlutarins eðli að þeir verði hærra hlutfall af þeim sem gista í fangaklefum.
Rannveig Þórisdóttir, félagsfræðingur hjá lögreglunni, segir að ofurölvun sé oft ástæða fyrir veru fólks í fangageymslu. Ef viðkomandi sé áfengisdauður eða geti af öðrum ástæðum ekki tjáð sig og hafi ekki skilríki þá verði hann að gista fangageymslu frekar en að vera sendur heim. Rannveig segir að þjófnuðum hafi fjölgað í sumar og þjófnaðarmál hafi verið ein helsta ástæðan fyrir veru útlendinga í fangaklefa það sem af er þessu ári. Útlendingar séu líka í fangaklefum vegna ölvunar við akstur og ölvunar á almannafæri í þessari röð en Íslendingar séu í fangaklefum vegna ölvunar við akstur, á almannafæri og þjófnaðar. Íslendingar óski líka miklu frekar eftir því að fá að gista í fangaklefa en útlendingar.
„Maður verður alltaf að passa sig á því með erlendu ríkisborgarana að þetta eru lágar tölur. Það þarf ekki nema einn hóp til að skekkja myndina," segir hún. -ghs@frettabladid.is
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080914/FRETTIR01/542470622&SearchID=7333007379509)