Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Gasman og Viðar

28. apríl 2008

Einn maður stóð upp úr í mótmælunum á Norðlingaholti, það er lögreglumaðurinn sem öskraði af lífs og sálarkröftum „gas, gas, gas“ áður en hann sprautaði á hörfandi mannfjöldann. Hefur lögreglumaðurinn hlotið viðurnefnið Gasman í kjölfarið, og er hent að því gaman að hann sé orðinn meðlimur í hljómsveitinni Merzedes Club. Annar skammarverðlaunahafi er Viðar Guðjohnsen, formaður ungra frjálslyndra, sem legið hefur undir ámæli fyrir pólitískt rangar skoðanir á útlendingum. Hann var handtekinn á vettvangi, eins og margir aðrir, en öskraði hið undarlega slagorð „Þeir eru að berja Íslendinga!“




Heimild: dv.is (http://dv.is/skrafadogskrifad/lesa/8076)

Nasistanemendur ekki ávíttir

23. apríl 2008

Útskriftarnemendurnir sem fóru um Smáralind í morgun og komu við á mótmælum vörubílsstjóra nú um tvö leytið eru frá Iðnskólanum í Hafnarfirði. Eins og dv.is greindi frá fyrstur fjölmiðla í morgun fóru nemendurnir um ganga Smáralindar í morgun klæddir Nasistabúningum við mikla athygli viðskiptavina. Um tvö leytið heilsuðu nemendurnir að Nasistasið í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu, þar sem mótmæli vörubílsstjóra fóru fram.

Jóhannes Einarsson, skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði, segir gjörninginn ekki hafa verið gerðan með vitneskju skólayfirvalda. Þarna sé um að ræða lítinn hóp útskriftarnemenda, en þeir eru við málmiðnaðardeild skólans. Alls munu um hundrað nemendur útskrifast frá Iðnskólanum í Hafnarfirði í vor. „Þegar nemendur eru að dimmitera eru þeir í allskonar búningum. Hver deild hefur sinn búning. Nemendur eru í skólanum fram til hádegis en fara svo út. Þetta er ekkert á vegum skólans,“ segir Jóhannes sem segir búninga nemendanna ekki ætlaða til að meiða einn né neinn.

Jóhannes segir ekkert liggja á bakvið þessar aðgerðir nemendanna annað en að þarna sé ungt fólk að skemmta sér og gera sér glaðan dag. „Hver og einn verður að vera ábyrgur sinna gerða. Það eina sem ég vona er að þeir komi prúðmannalega fram þótt þeir séu að leika sér. Ég get ekki ráðið því hvað þeir gera. Þegar menn sjá svo einhvern atburð sem þennan í sjónvarpinu geta þeir litið á sem svo að það geti verið sniðugt að líta þangað. Þetta er ekkert að undirlagi skólans. Skólinn getur ekki verið með siðgæðisvernd og ræður ekki yfir nemendum þegar er komið út fyrir lóð skólans,“ segir Jóhannes.

Nemendurnir mæta aftur í skólann á mánudag. Ekki er búist við því að þeir verði ávíttir sérstaklega vegna þessa.

Dane Magnússon, formaður Félags anti-rasista, sagði í samtali við dv.is fyrr í dag að honum fyndist nemendurnir hafa gengið of langt í framferði sínu. Hann óskaði jafnframt eftir skýringum á því hvers vegna dimmitering nemendanna hefði verið með þessum hætti. Hann sagði þessar aðgerðir hafa verið meiðandi fyrir marga sem á horfðu.


Heimild: dv.is (http://dv.is/frettir/lesa/7897)

Nasistarnir gefi sig fram

23. apríl 2008

„Ég heyrði hávaðann og sá þegar hópurinn var að fara. Ég áttaði mig aftur á móti ekki á því um hvað væri að vera strax. Svo hitti ég félaga minn sem er frá Bretlandi. Hann var í sjokki yfir þessu,“ segir Dane Magnússon, formaður Félags Anti-rasista. Hann var staddur í Smáralind í morgun þegar hópur fólks klætt Nasistabúningum þrammaði um ganga verslunarmiðstöðvarinnar. Er talið að þarna hafi verið um dimmiteringu að ræða.

Eins og dv.is greindi frá fyrr í morgun truflaði hópurinn ekki starfsemi Smáralindar að miklu leyti, en öryggisverðir fylgdust grannt með fólkinu. Ekki er vitað hvaða skóla fólkið er frá.

Dane skorar á þessa einstaklinga að koma fram og svara fyrir um hvers vegna þeir hafi ákveðið að fara þessa leið. Þá skorar hann á viðkomandi skóla að svara fyrir um þetta háttalag nemendanna. „Þetta er alls ekki fyndið og finnst mér of langt gengið í þessu máli. Þarna eiga að vera menntaðir krakkar sem eiga að vita þá sögu sem býr þarna að baki. Ég spyr af hverju þessi leið var farin en ekki einhver önnur,“ segir Dane.

Dane segir ljóst að hópurinn hafi verið að skipuleggja atvikið lengi, en fólkið hafi til að mynda þurft að útvega sér búningana með einhverjum hætti.



Heimild: dv.is (http://dv.is/frettir/lesa/7889)

Ódæðisverk í nafni trúar

21. apríl 2008

Salmann Tamimi stendur í ströngu á bloggsíðu sinni en þar segist hann gleðjast yfir því að kerfið hjá okkur Íslendingum virki. Hann segir að með því að loka bloggsíðum sem breiða út hatur og lygar á netinu sé málfrelsið tryggt. Skemmst er að minnast þess að bloggsíðu Skúla Skúlasonar var lokað á dögunum vegna skrifa um íslam. Salmann segir að boðskapur íslams sé kærleikur, virðing og jafnrétti. Hins vegar fremji menn um allan heim ódæðisverk í nafni trúar sinnar.

„Þetta er nákvæmlega eins alls staðar og þarf ekki að fara lengra en til Íslands, þar sem við höfum Guðmund í Byrginu að fremja ódæði í nafni kristinnar trúar, eða til Texas þar sem stúlkum var haldið nauðugum. Allt í nafni trúarinnar,“ segir hann. Viðbrögðin láta ekki á sér standa því liðlega tvö hundruð manns hafa skrifað athugasemdir við færsluna. Mörgum er heitt í hamsi.



Heimild: dv.is (http://dv.is/frettir/lesa/7806)

Flytjast 3.000 útlendingar burt?

20. apríl 2008

Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, spáir því að erlendu fólki á vinnumarkaði fækki um að a.m.k. 3.000 manns í ári. Þetta geti orðið til þess að atvinnuleysi aukist hægar hér á landi en það hefði annars gert. Hann telur ólíklegt að atvinnuleysið fari upp fyrir 2% á þessu ári líkt og Seðlabankinn spáir.

 

Í síðasta mánuði mældist það 1,05% en það jafngildir því að 1.674 hafi að meðaltali verið án vinnu í mánuðinum. Í sögulegu samhengi er þetta afar lítið atvinnuleysi. Í sama mánuði í fyrra var atvinnuleysið 1,3% og þá voru flestir sammála um að atvinnuástandið væri mjög gott.

 

En hvað er fram undan í atvinnumálum? Menn eru almennt sammála um að erfitt sé að spá um hvað gerist á næstu misserum. Í nýrri skýrslu fjármálaráðuneytisins er bent á að aldrei áður hafi jafnstór hluti vinnuaflsins verið af erlendum uppruna og ekki sé vitað í hve miklum mæli erlendir starfsmenn verði hér áfram ef þeir missi atvinnuna.

 

Seðlabankinn lækkaði spá sína

Í haust spáði Seðlabankinn 2,7% atvinnuleysi á þessu ári. Í spá sem bankinn birti í síðustu viku hefur hann lækkað töluna niður í 2,1%. Fjármálaráðuneytið birti þjóðhagsspá í þessari viku og þar er spáð 1,7% atvinnuleysi. Ráðuneytið hafði sömuleiðis spáð meira atvinnuleysi í fyrri spá sinni. Atvinnuleysi á fyrstu þremur mánuðum ársins hefur verið um 1% og það er því ljóst að ef spá Seðlabankans um 2,1% atvinnuleysi á árinu öllu á að ganga eftir þarf það að fara upp fyrir 3% í haust.

 

Gissur segir að um 17 til 18 þúsund erlendir starfsmenn séu á vinnumarkaði. Hann segist reikna með að þeim komi til með að fækka um 3.000 á þessu ári, jafnvel meira. Þetta leiði til þess að atvinnuleysið verði ekki eins mikið og það hefði annars orðið.

 

Þess ber þó að geta að verulegt streymi útlendinga er enn til landsins og raunar sýna tölur fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins að álíka margir komu til landsins á tímabilinu og sömu mánuði í fyrra.


Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/20/flytjast_3_000_utlendingar_burt/)

1 2 3 >>