Mér finnst lífi mínu ógnað
"Ég fer ekki lengur einn í bæinn af ótta við hvað kunni að gerast," sagði Olufela Teddy Owolabi 25 ára gamall Nígeríumaður sem hefur verið búsettur hér á landi í tæp fjögur ár.
Hann segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum sínum við lögregluna í Reykjavík og segist vilja koma skoðunum sínum á framfæri fyrst og fremst vegna tveggja sona sinna, 2ja ára og níu mánaða, sem fæddir hér á landi.
"Ég vil ekki að þeir upplifi það sama og ég síðastliðinn sunnudag. Ég vil að þeir geti tjáð sig frjálslega í sínu heimalandi og sagt hug sinn án þess að eiga það í hættu að lenda í fangageymslum fyrir þær sakir einar að vera dökkir á hörund." Olufela eða Teddy eins og hann kýs að kalla sig er að vísa til atviks sem varð á Hverfisgötunni síðastliðinn sunnudagsmorgun þegar hann segir að ráðist hafi verið á sig og nígeríska félaga sína vegna þess að þeir eru dökkir á hörund. Segir Teddy lögreglu hafa lagt á sig hendur og látið sig dúsa handjárnaðan í fangageymslu dágóða stund.
Teddy sagðist vilja vekja máls á þessu í fjölmiðlum þar sem þetta væri ekki í fyrsta sinn sem hann lenti í útistöðum við lögregluna. "Hlutirnir eru stöðugt að versna með hverju degi sem líður og slagsmál eru orðin mun tíðari. En eins og lögreglan meðhöndlar hlutina gefur það fólki til kynna að það sé allt í lagi að stofna til slagsmála við fólk af öðrum kynþætti því afleiðingin sé sama og engin. Mér finnst sem lífi mínu sé ógnað og er kominn á það stig að vilja ekki hringja í lögregluna því það hefur hingað til ekki komið mér til hjálpar. Kýs ég frekar að kalla vini mína til aðstoðar og þegar málin eru komin á það stig getur það leitt til óeirða milli hópa af mismunandi kynþáttum."
Teddy sagði ofbeldi og fordóma ekki hafa verið svona áberandi þegar hann kom fyrst til Íslands. "Þetta fer stigvaxandi og m.a. út af því að það er ekki rétt haldið á málunum og aðgerðum ekki rétt stjórnað." Teddy sagði að ef ekkert yrði að gert ætti ofbeldið að fara úr böndunum og að endingu mundi einhver láta lífið í átökunum. "Ég get ekki ímyndað mér að þetta sé það sem íslenska þjóðin vill og því verður að grípa í taumana strax. Ísland á að vera fyrirmynd annarra þjóða þar sem allir eiga að geta lifað saman í sátt og samlyndi. Ég græt innra með mér þegar ég hugsa til strákanna minna því ég vil ekki að þeir séu að lenda í því sama og ég," sagði Teddy að lokum.